Sumarspilerí #2

Þetta er framhald af vikudagsfílingskvöldunum sem við héldum í fyrrasumar, þar sem sumir enduðu dansandi uppá borðum.
--> 22, Laugavegi, miðvikudagskvöldið (annað kvöld) 2. júlí kl. 22-01
Ef þú hefur mætt á kvöldin okkar þá veistu hvað við spilum, en það er ítaló diskó, elektró, boogie, gamalt hás, og önnur róleg og róbótísk músík.
Við byrjum á slaginu 22.00 og spilum til ca 01. Við byrjum örugglega í rólegri kantinum, en sjáum til hvað gerist í hjörtum vorum.
Hér er örlítið minimix sem HOTPLAY (from Europe) skellti saman í tilefni af síðasta partýi.
Og við viljum endilega að þú verðir vinur okkar á mæspeis:
http://www.myspace.com/hotplayfromeurope
Ást og virðing!
p.s. 2. júlí kl. 22 á 22 -- auðvelt að muna. :)
Comments(1)
So, this is an amazing set. Any chance you might share the playlist?
Written 11.07.08 03:12