« Gaznevada | Main | Tónastund »

Ítalókvöld #2 á Barnum annað kvöld, föstudanskvöldið 3. ágúst!

Ítalókvöld #2 verður á Barnum annað kvöld, föstudanskvöldið 3. ágúst!
Skemmtunin byrjar stundvíslega kl. 23.59.

Það var ótrúlega gaman síðast. Landsliðið í Ítalódansi mætti eins og það lagði sig, dansandi uppá borðum og stólum og skrækjandi af gleði við vel heppnaðar skiptingar. Við metum það mikils, og hlökkum til að sjá miklu fleiri dansa annað kvöld.

Svenni (Dj Forever Lover) er hvað frægastur fyrir leynilegt bréfasamand sitt við Giorgio Moroder, ásamt því þegar hann lúppaði Rydeen-hrossaintróið og droppaði því þegar það var sjóðheitt, sem gerði sveitta dansiþvöguna agndofa af undrun og fíling.

Halli (Dj Shy Like An Angel) er hvað frægastur fyrir að hafa verið með Svenna þegar hann lúppaði Rydeen-hrossaintróið og gerði sveitta dansiþvöguna agndofa af undrun og fíling, en hefur einnig verið þekktur fyrir fágætt bragðskyn og hágæða lagaval undir miklum þrýstingi.

Tilað koma öllum í dansigírinn flugum við með Arnarflugi til Sitges og fengum afnot af mest móðins hátæknigræjum tilað skapa besta mixdisk sem skapaður hefur verið síðan Max Mix bræðurnir voru uppá sitt besta:

DJ Shy Like An Angel & DJ Forever Lover kynna: Italo!
Sækja megamixdisk!

Kondu!

Comments(5)


Den Harrow:

Er ekki Tracklistin á leiðinni?

Hann er í fragtara á leið yfir Atlantshafið. Birtist hér von bráðar...

Kamilla:

þetta er búið að vera á rípít á iPodnum mínum

uwCOLJ Viagra

I'm happy to have found your especially excellent article! I agree with some of your readers and will eagerly look forward to your coming updates. Just saying thanks will not just be adequate, for the wonderful lucidity in your writing. I will instantly grab your rss feed to stay privy of any updates. Good work and much success in your business efforts.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)