
Ég og Svenni erum að spila á Barnum í kvöld, fimmtudanskvöldið 12. júlí, og byrjum kl. 22.00.
Við ætlum að spila Ítaló Diskó og viljum endilega sjá þig. Kondu.
Hér eru helstu upplýsingar um kvöldið:
Halli (AKA DJ Shy Like An Angel) hefur ferðast um heiminn og vakið á sér athygli í vinsælustu næturklúbbum New York, Los Angeles og Napólí. Hann hefur einnig komið til Marmaris. Hann hefur náð nokkrum frábærum taktskiptingum.
Svenni (AKA DJ Forever Lover) er einn af efnilegustu íslensku ítalóplötusnúðunum. Hann er með próf frá plötusnúðafélagi íslands, og hefur spilað á fjölmörgum diskótekum og skemmtunum. Syrpur eftir hann hafa innihaldið lög víðsvegar að úr heiminum.
Klæddu þig upp og komdu og fáðu þér mergjaðan alvöru ítalskan kokteil, og stígðu nokkur dansspor. Það verður kveikt á diskókúlunni! Freestyle-dansarar (sigurvegarar og verðlaunahafar) velkomnir.
Hér eru nokkur Youtube vídeó með skemmtilegu ítalói:
» Trans-X - Living On Video
» Telex - Moskow Diskow
» Koto - Jabdah
Comments(5)
SJIIIIITTT HVAÐ ÞAÐ VAR GAMAN!!!
Written 13.07.07 01:35
Já, það var ógeðslega gaman þó að ég hafi komið seint. Hápunkturinn var samkvæmisdans uppá stólum við Rydeen. Hvenær verður næsta dansiball?
Written 17.07.07 17:49
Davíð: takk fyrir stuðið! Veit ekki alveg hvenær næsta verður, en kannski eftir tvær vikur.
Kvöldið er komið með Mæspeis-prófíl (auðvitað): myspace.com/italodisko
Vertu vinur okkar.
Subway verður spilað næst...ég lofa.
Written 17.07.07 19:01
The Moskow Diskow video is great! shame the other two have been taken down. There are some wonderful La Bionda videos on Youtube for Wanna Be Your Lover. Some really awful miming going on
Written 21.08.07 18:52
Seb: I fixed the video-links. Apparently they ones I linked to were removed, but there are several other uploaded ones...
Thanks for letting me know!
Written 13.09.07 03:08