Fjúff. Meira en viku-mega-sveitasæla endurtekin, án internets og með símahleðslutækissparnaði og sjóvaði og fuglasöng og helling af nammi.
Ég hlustaði á mikið af músík, og það var undarlega (samt ekkert undarlega) gott að liggja með fuglatíst í annað eyrað og allskonar fínerí í hitt...og auðvitað vita af allri einka-fegurðinni umkringja mig.

International Music System er mikil leynigrúppa, þar sem öll kreditin á plötunum voru bara nafn grúppunnar. Það eru til myndir af meðlimunum, eða einhverjum að pósa sem meðlimunum, en mér finnst fínt að vita lítið um bandið. Ég er búinn að ákveða að þetta séu tyrkneskir trúbadorar sem, eftir að hafa túrað með Bulent Ortacgil í fjölda ára, ákváðu að eyða sparnaðinum í mest móðins hljómborð og græjur og taka upp smá fílings-ítaló.
Tyrknesk tilfinningamúsík, gjöriði svo vel, beint frá hásléttum Anatólíu:
International Music System - Runaway
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Allt sem kom frá þessu bandi er svo gott. Svo svo gott.

La Bionda bræðurnir gerðu fullt, fullt af snilld, allt frá hjólaskautadiskó útí meira rafmagns-italo og skrýterí og fínerí. Tveimur árum eftir 'One For You, One For Me' kom þetta lag, sem er unaðslega ólíkt, og fyndið að það komi útúr sömu fingurgómum og hitt píanógleðiglundrið. Það eru örugglega allir búnir að dansa við þetta lag, eða a.m.k. hugsa um dópamínþurfandi kvensuna sem talsyngur.
Elskan, ég VIL vera þinn ástmögur.
La Bionda - I Wanna Be Your Lover
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Massara var sólóverkefni Pino Massara. Hann byrjaði ferilinn á rosalega djúpri og háfleygri elektróník, þ.e. allskonar ambíent og rafmagns-klassíkurpælingum sem hann ýmist meðsamdi eða pródúsaði, og árið '77 gaf hann m.a. út tveggja laga LP plötu þar sem annað lagið var yfir 20 mínútur. Eitt af fyrstu eiginlegu sólóverkunum kom út undir nafninu Massara, og það lag var seinna koverað af Íslandsvinunum í Boney M (og líka nokkrum öðrum), og þá undir öðru nafni.
Upprunalega útgáfa Massara er sú lang, lang, langedílangbesta. Og já, svei þeim gaur sem reyndi að búa til eitthvað house-drasl úr bassamelódíunni. Heyrði það einhverntímann í fyrra og gretti mig þegar heilinn minn vann úr vanskapnaðinum og ég fattaði hvaða bastarður þetta var. Fjakk!
Þetta lag heitir ýmist 'Margeritha', 'Margarita' eða 'Margherita', en þúveist, hverjum er ekki sama?! Kartafla, karpedla, o.s.frv.
Massara - Margeritha
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Comments(1)
Djóis, La Bionda ...
búinn að sjá vídeóið?
http://youtube.com/watch?v=9-eRogTjqvQ
One for you one for me vídeóið er líka ... úff:
http://youtube.com/watch?v=hcduWBy7Cp8
Mest sexí maður on-planet eða off.
Written 09.07.07 20:14