« júní 2007 | Aðalsíða | ágúst 2007 »

júlí 2007 Safn

28. júlí, 2007

Gaznevada

Smá megadjúpt "Mind-altering Excursions Into Soundscapes" eftir mig: Gaznevada byrjaði --einsog langflestar hljómsveitir-- sem paunkband. Þetta virðist vera auðveldasta leiðin inní tónlistartilbúning, að safna saman nokkrum hressustu vinum sínum með flottustu klippinguna, redda samanteipuðum og hálf-hrundum hljóðfærum og bílsskúr (eða stóru herbergi) og svo, kannski afþví að enginn ykkar kann á hljóðfæri, að hækka bara mikið og spila og garga. Svo batnar bandið og þessi leiðinlegi með fínustu klippinguna og langdýpstu og viðkvæmustu hugmyndirnar beilar, segist ekki látið halda sér niðri lengur (eða eitthvað þannig), og restin æfir sig dáldið og fattar að þeir vilji í alvöru gera músík, og þá prófa þeir að spila lausar á hljóðfærin og jafnvel loka augunum inná milli. Svo á einn gamlan frænda sem gefur þeim hljómborð, og þá kemur rafmagn.

Þetta á við um allar hljómsveitir. Hverja einu og einustu í sögunni. Satt!

gaznevadaifiling.jpg

Fyrsta demó Gaznevada kom 1979 og var kassetta með frekar hráu rokkpaunkfikti...eða nei, það er bull. Ég veit ekkert hvað þeir eru að pæla á þessu demói, en það er eitthvað fáránlega djúpt og tilraunakennt (og samt ekki tilraunakennt) sem ég er engan veginn að tengja við eða fatta. Eða að nenna að hlusta alltof oft á, þúveist. Sem betur fer (fyrir mig) varð enginn eða mikill listrænn ágreiningur og þeir þróuðust strax útí synthapopp með venjulegum trommum og bössum og söng. Árið 1983 kom út 'I. C. Love Affair' sem er eitt af tveimur frægustu lögunum þeirra (þrátt fyrir fullt, fullt af lögum), og á miklu meira skylt við Ítaló og skrýtnar diskópælingar en rokk, þrátt fyrir að vera sungið og bara með hljómborðsundirspil. Ég held að þessi útgáfa heiti 'Italian Version' afþví að...uuhh...

Gaznevada - I C Love Affair (Italian Version)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Hér er annað lag sem kom út sama ár, og er hitt frægasta lagið þeirra. Þessi útgáfa heitir 'Female Version' afþví að það heyrist í talandi konu. Talandi konu! Hugsa sér!!!

Gaznevada - Special Agent Man (Female Version)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Það sem ég elska við Gaznevada er ljóðræna dramað í söngnum; ekki að textinn sé svo gríðarlega djúpur, heldur vill hann vera það, og röddin tindrandi og allskonar fínt sem virðist ekki alveg passa, en passar samt fullkomlega. Skakkt, en samt rétt. Anda út.

21. júlí, 2007

Fílingur

Ítalókvöldið var æði. Skemmtilegt fólk dansaði og skrækti uppá stólum og borðum, og þeir sem mættu ekki bjuggu bara til meira pláss fyrir hina.

Bjarki dansaði mest (held ég), var a.m.k. sveittastur. Ég lofaði Davíð að spila 'Subway' en svo þurftum við að hætta og hleypa barfólkinu heim að sofa. En það verður spilað næst, ég lofa lofa.

Danny Boy & The Serious Party Gods eru kannski ekkert voðalega alvarlegir, en þeir eru alvarlegir stuðboltar. Einhver sagði að þetta lag væri þeirra undarlega take á laginu 'Valley Girl' eftir Frank Zappa. Textinn er dónó og megahress, og passar vel inní gay-djammið í San Francisco back in the day. Castro er eitt aðal gay-djamm hverfið í borginni. Einn aðalgaurinn, John Hedges, var mega-dj í San Francisco frá 70s, og ber titilinn "1976 Billboard DJ Of The Year"...fæðingarárið mitt, how fitting!

Danny Boy and The Serious Party Gods - Castro Boy
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Q eru bara hinir óþekktu Q, og 'Voice of Q' er eina platan sem kom út með þeim. Þetta er ekki ítaló, heldur meira rafmagnsdiskó með geimflauti. Yes please.

Q - The Voice of Q
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Public Passion er líka leyniband. Á ég að segja eitthvað? Lagið er frábært. Söngkonan hljómar einsog blanda af Yazz (úr Yazz and the Plastic Population) og Alison Moyet.

Public Passion - Flash In The Night
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Black Devil er diskókultklassíkmegaband sem allir vita hvað er. Gáfu út plötu árið 1978 sem hafði mjög líklega gríðarlega mikil áhrif á elektró-hliðar Ítaló Diskósins sem byrjaði næstu árin á eftir, og rafmagnstónlist í dag.

Þetta lag er af Disco Club Remix EP, og er remix eftir Kerrier District, a/k/a Luke Vibert. Hann teygir lagið aðeins útí dansifíling, smá meira boingsíboings. Upprunalega lagið er uppáhaldið mitt af 'Disco Club', en þetta rímix er frábært.

Black Devil - Timing, Forget The Timing (Kerrier District remix)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

12. júlí, 2007

Ítalókvöld á Barnum í kvöld, fimmtudanskvöld 12. júlí

Ég og Svenni erum að spila á Barnum í kvöld, fimmtudanskvöldið 12. júlí, og byrjum kl. 22.00.

Við ætlum að spila Ítaló Diskó og viljum endilega sjá þig. Kondu.

Hér eru helstu upplýsingar um kvöldið:

Halli (AKA DJ Shy Like An Angel) hefur ferðast um heiminn og vakið á sér athygli í vinsælustu næturklúbbum New York, Los Angeles og Napólí. Hann hefur einnig komið til Marmaris. Hann hefur náð nokkrum frábærum taktskiptingum.

Svenni (AKA DJ Forever Lover) er einn af efnilegustu íslensku ítalóplötusnúðunum. Hann er með próf frá plötusnúðafélagi íslands, og hefur spilað á fjölmörgum diskótekum og skemmtunum. Syrpur eftir hann hafa innihaldið lög víðsvegar að úr heiminum.

Klæddu þig upp og komdu og fáðu þér mergjaðan alvöru ítalskan kokteil, og stígðu nokkur dansspor. Það verður kveikt á diskókúlunni! Freestyle-dansarar (sigurvegarar og verðlaunahafar) velkomnir.

Hér eru nokkur Youtube vídeó með skemmtilegu ítalói:

» Trans-X - Living On Video
» Telex - Moskow Diskow
» Koto - Jabdah

8. júlí, 2007

Heimkomuendurhljómar

Fjúff. Meira en viku-mega-sveitasæla endurtekin, án internets og með símahleðslutækissparnaði og sjóvaði og fuglasöng og helling af nammi.

Ég hlustaði á mikið af músík, og það var undarlega (samt ekkert undarlega) gott að liggja með fuglatíst í annað eyrað og allskonar fínerí í hitt...og auðvitað vita af allri einka-fegurðinni umkringja mig.

International Music System er mikil leynigrúppa, þar sem öll kreditin á plötunum voru bara nafn grúppunnar. Það eru til myndir af meðlimunum, eða einhverjum að pósa sem meðlimunum, en mér finnst fínt að vita lítið um bandið. Ég er búinn að ákveða að þetta séu tyrkneskir trúbadorar sem, eftir að hafa túrað með Bulent Ortacgil í fjölda ára, ákváðu að eyða sparnaðinum í mest móðins hljómborð og græjur og taka upp smá fílings-ítaló.

Tyrknesk tilfinningamúsík, gjöriði svo vel, beint frá hásléttum Anatólíu:

International Music System - Runaway
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Allt sem kom frá þessu bandi er svo gott. Svo svo gott.

La Bionda bræðurnir gerðu fullt, fullt af snilld, allt frá hjólaskautadiskó útí meira rafmagns-italo og skrýterí og fínerí. Tveimur árum eftir 'One For You, One For Me' kom þetta lag, sem er unaðslega ólíkt, og fyndið að það komi útúr sömu fingurgómum og hitt píanógleðiglundrið. Það eru örugglega allir búnir að dansa við þetta lag, eða a.m.k. hugsa um dópamínþurfandi kvensuna sem talsyngur.

Elskan, ég VIL vera þinn ástmögur.

La Bionda - I Wanna Be Your Lover
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Massara var sólóverkefni Pino Massara. Hann byrjaði ferilinn á rosalega djúpri og háfleygri elektróník, þ.e. allskonar ambíent og rafmagns-klassíkurpælingum sem hann ýmist meðsamdi eða pródúsaði, og árið '77 gaf hann m.a. út tveggja laga LP plötu þar sem annað lagið var yfir 20 mínútur. Eitt af fyrstu eiginlegu sólóverkunum kom út undir nafninu Massara, og það lag var seinna koverað af Íslandsvinunum í Boney M (og líka nokkrum öðrum), og þá undir öðru nafni.

Upprunalega útgáfa Massara er sú lang, lang, langedílangbesta. Og já, svei þeim gaur sem reyndi að búa til eitthvað house-drasl úr bassamelódíunni. Heyrði það einhverntímann í fyrra og gretti mig þegar heilinn minn vann úr vanskapnaðinum og ég fattaði hvaða bastarður þetta var. Fjakk!

Þetta lag heitir ýmist 'Margeritha', 'Margarita' eða 'Margherita', en þúveist, hverjum er ekki sama?! Kartafla, karpedla, o.s.frv.

Massara - Margeritha
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Um júlí 2007

This page contains all entries posted to Musik Kontrapunkt Kontrol in júlí 2007. They are listed from oldest to newest.

júní 2007 is the previous archive.

ágúst 2007 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.31