« Tölvutónlist með einum takka sem maður bara ýtir á | Main | Heimkomuhljómar »

Fimm daga brottför þýðir eitt lag á dag

Verð líklega ekki með tölvuna mína næstu fimm daga, og þessvegna ætla ég að setja fimm lög þannig að þau dugi næstu fimm daga. Eitt á dag, eða fimm á dag, eða fimm einn daginn og svo þögn alla hina - hey, þú ræður.

Það hafa allir heyrt þetta lag allsstaðar, það er spilað í Kringlunni og Smáralind og Eden og er á öllum Pottþétt safndiskum og Now! og Awesome Hits og allir hafa dansað við það á félagsmiðstöðvaböllum og horft á það á VH1 Classics og bla bla bla...

...og kannski fá smá leið á því, þúveist?

En samt pældi ég aldrei í því að ég hafði aldrei heyrt bara lagið, þ.e. undirspilið án söngsins. Og svo heyrði ég það og fattaði að ég gat alveg hlustað á þetta lag uppánýtt án þess að finnast að ég væri að hlusta á mestu 80s klisju í heimi, sem er auðvitað ekkert laginu sjálfu að kenna, nema auðvitað að það var svo gott? Ég veit það ekki, en ég veit að þessi útgáfa er f*kking góð. Enga fordóma, hlustaðu bara.

Af upprunalegu tólftommunni frá 1981.

Human League - Don't You Want Me (Extended Edition)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

N.O.I.A. með lag um sanna ást. (sjáðu hitt lagið)

N.O.I.A. - True Love
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Talking Heads árið 1980, af sömu undurplötu og hið miklu frægara 'Once In A Lifetime'. Pródúsað og co-samið af Brian Eno (sem vér elskum).

Talking Heads - Crosseyed And Painless (Long Version)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

New Musik er bresk syntapoppgrúppa sem var til milli 1977 og 1982. 'Warp' er síðasta lagið af síðustu plötunni frá síðasta árinu. Ekki gráta, lagið er svo gott.

New Musik - Warp
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Sun La Shan er skrýtið band með skrýtinni söngkonu sem varð eldri og skrýtnari, og þá meina ég MJÖG skrýtnari. (ég held að hún vilji líta út einsog hún var sem hressust árið 1981). Mundu, Catch is sexy.

Sun La Shan - Catch
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Comments(3)


Bob:

Ég hef lengi elskað 'True Love'. Meiriháttar lag. Svo var revelation að heyra Human League í instrumental útgáfu. Proper.

Já, það verður eiginlega einsog nýtt lag. Svo hlustaði ég miklu betur á lagið en áður. Finnst líka pínu skrýtið hversu mörg ár það tók mig til að heyra þessa útgáfu, þegar hún var við hliðiná hinni...

Bjarki:

Já, Don´t You Want me instrumental útgáfan er alveg klikk. Alveg nýr vinkill á lagið. Næstum bara betri en instrumentallinn af La Dolce Vita með Ryan Paris!

Djöfull er Warp með New Wave brjálað!!!

Meira svona Halli :)


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)