« maí 2007 | Aðalsíða | júlí 2007 »

júní 2007 Safn

20. júní, 2007

Lukku Tríó #7

( Þetta verður stutt, þarsem Safari krashaði þegar ég vistaði allt blaðrið )


Nasa er hópur af sænskum starfsmönnum Bandarísku geimvísindastofnunarinnar, sem komu saman árið 1985 og gerðu þetta lag tilað minnast Paulu, samstarfskonu sinnar sem lést við geimgönguæfingar.

Nei djók.

Nasa - Paula
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Yello eru tveir hvítir og megahressir: Boris Blank og Dieter Meyer (blabla). Man ekkert hvað ég skrifaði áðan, en það var eitthvað blaður um...um...eitthvað, og að í þessu lagi er leynigarg í miðjunni sem var notað í annað og verra lag sem varð vinsælt in ðe næntís. Þetta lag er hinsvegar gott stöff frá 1981, og fær bílpróf á næsta ári.

Yello - Bostich
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


The Passage voru breskir rokk-synthapopparar, sem komu fram í Peel Session og gáfu út plötur frá 1978 til 1984. Þetta lag er mega-hresst og ótrúlega bissí og æst og mikið að gerast og mjög fínt.

The Passage - XOYO
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

14. júní, 2007

Heimkomuhljómar

Ég er kominn heim úr mega-sveitasælu, og langar stax aftur í stuttbrækur og sólarströnd. Hér koma þrjú eitruð lög sem koma mér í fílinginn:

Eddy Huntington er últrahress ítali sem lítur út einsog týndi Beach Boysinn og syngur typpalegasta italo sem til er--það er ótrúlega gott, en á sama tíma frábærlega fyndið. Talandi um typpalegt, þá er textinn í þessu stuðlagi frá 1987 einn sá skrýtnasti sem ég veit um, og öll hljóðfærin gera lagið fullkomið strandarstuð.

Þetta er hið fullkomna lag tilað koma tengdó í fíling og lokka þau niðrá ströndina, passaðu bara að þau séu búin að drekka nóg sérrí tilað textinn renni ljúflega í gegn.

Eddy Huntington - Meet My Friend
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Cruisin' Gang eru þrjár meeeegahressar píur, sem slíta þig frá tengdó um leið og þú kemur niðrá strönd. Þeim er alveg sama þó þú sért enn með leðurbindið og í handtuggnu ítölsku leðurskónum, það gefur þér bara betra grip þar sem þú dansar oná krossfiskunum. Ahhh hvað öldurnar eru mjúkar og hlýjar...

Cruisin' Gang - On The Beach Tonight
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Starflight taka á móti þér þegar þú kemur holdvotur aftur á hótelbarinn, færa þig úr blautu fötunum, blása sandinn úr eyrunum þínum, og gefa þér skrýtinn kokteil...þig fer dáldið að svima og þarft smá stuðning þar sem þau leiða þig inní bakherbergið sem þú vissir ekki að væri til...þú ert eiginlega viss um að það hafi ekki verið þarna áður. Stóllinn sem þau óla þig í er þægilegri en hann lítur út fyrir að vera. Bíddu...þessi rödd...hver dansar þarna í horninu...er þetta hún...? Þú slítur þig lausan. Engar ólar halda þér þegar takturinn togar í þurran líkamann.

Starflight - Dance To The Beat
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

8. júní, 2007

Fimm daga brottför þýðir eitt lag á dag

Verð líklega ekki með tölvuna mína næstu fimm daga, og þessvegna ætla ég að setja fimm lög þannig að þau dugi næstu fimm daga. Eitt á dag, eða fimm á dag, eða fimm einn daginn og svo þögn alla hina - hey, þú ræður.

Það hafa allir heyrt þetta lag allsstaðar, það er spilað í Kringlunni og Smáralind og Eden og er á öllum Pottþétt safndiskum og Now! og Awesome Hits og allir hafa dansað við það á félagsmiðstöðvaböllum og horft á það á VH1 Classics og bla bla bla...

...og kannski fá smá leið á því, þúveist?

En samt pældi ég aldrei í því að ég hafði aldrei heyrt bara lagið, þ.e. undirspilið án söngsins. Og svo heyrði ég það og fattaði að ég gat alveg hlustað á þetta lag uppánýtt án þess að finnast að ég væri að hlusta á mestu 80s klisju í heimi, sem er auðvitað ekkert laginu sjálfu að kenna, nema auðvitað að það var svo gott? Ég veit það ekki, en ég veit að þessi útgáfa er f*kking góð. Enga fordóma, hlustaðu bara.

Af upprunalegu tólftommunni frá 1981.

Human League - Don't You Want Me (Extended Edition)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

N.O.I.A. með lag um sanna ást. (sjáðu hitt lagið)

N.O.I.A. - True Love
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Talking Heads árið 1980, af sömu undurplötu og hið miklu frægara 'Once In A Lifetime'. Pródúsað og co-samið af Brian Eno (sem vér elskum).

Talking Heads - Crosseyed And Painless (Long Version)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

New Musik er bresk syntapoppgrúppa sem var til milli 1977 og 1982. 'Warp' er síðasta lagið af síðustu plötunni frá síðasta árinu. Ekki gráta, lagið er svo gott.

New Musik - Warp
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Sun La Shan er skrýtið band með skrýtinni söngkonu sem varð eldri og skrýtnari, og þá meina ég MJÖG skrýtnari. (ég held að hún vilji líta út einsog hún var sem hressust árið 1981). Mundu, Catch is sexy.

Sun La Shan - Catch
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

3. júní, 2007

Tölvutónlist með einum takka sem maður bara ýtir á

Þetta er algjör klisja, en flestir italo pródúserarnir voru fiktandi í endalausum öðrum prójectum undir endalausum öðrum nöfnum, enda margir þá búnir að vera í allskonar stúdíó- og sessionvinnu, fikta í paunkböndum og eignast börn og kaupa hús og safna skeggi og þannig veseni, og það er bæði ástæðan fyrir magninu sem kemur frá þeim sumum (og hvers konar mega-maskínur þeir eru), og því að lögin eru f*kkíng góð...alvöru músík, skiluru.

Ég er ekkert að velja einhverja ofvirka gaura, heldur eru kláru gaurarnir bara útum allt, með puttana í öllu! Enníveis:

Cyber People er sólópróject Alessandro Zanni, eða réttara sagt snilldarsólópróject þar sem að allt sem hann gaf út undir þessu nafni er svo ótrúlega "rétt", sándar svo vel og er svo áferðarfallegt og ofurnæs. Hann var auðvitað með gylltu puttalingana sína í allskonar fikteríi og pródúsaði heeeelling af snilld, einsog t.d. Koto, Ken Lazlo, Baby's Gang, og Hipnosis...eiginlega hefur hann komið nálægt ótrúlega miklu af snilldarlögum, og sumum frægustu italo disco böndunum evör.

Snillingur.

Á "Uppáhalds italo lögin mín evör" eru held ég öll Cyber People lögin. *sniff*
Þetta lag er af fyrstu útgáfu bandsins frá 1984.

Cyber People - Polaris
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Laser Dance voru Erik Van Vliet og Michiel Van Der Kuy, sem báðir voru í allskonar öðrum prójectum. Laser Dance var mín uppáhalds samstarfsgrúppa þeirra hollensku stuðbræðra, og lagið að neðan eitt uppáhalds lagið mitt frá þeirri grúppu. Þeir gáfu líka út sem Primero ('Oh Que Calor') og Sisley Ferré, og það dót var frekar fínt líka.

Hr. Erik Van Vliet var alveg ágætis gaur, en Michiel Van Der Kuy varð aðeins frægari, því eftir eitthvað laga-(einsog í lögfræðingur og þannig vesen)-vesen, þar sem dúóið Koto missti útgáfuréttinn og nafnið til plötuútgáfunnar sinnar, tók hann við verkefninu og gaf út allskonar (hálfgert) drasl, áður en annar úr dúóinu sem startaði Koto eignaðist nafnið aftur. Fyrstu lögin með upprunalega Koto voru og eru algjör snilld, og mér finnst ekkert alltof kúl eða fínt að Hr. Van Der Kuy hafi gert samning við plötukölska og allt það. En Gvuð blessi hann fyrir hárið hans (það er soldið stórt), og fyrir alla hina fínu músíkina sem flæddi útúr líkamanum hans.

Laser Dance - Shotgun (Into The Night)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Mito voru frægastir fyrir koverlagið sem ég pósta hér. Originallinn er ótrúlega fínn og yndislegur, en þetta er meira memory synthesizer computerized (sem er þema dagsins). Stefano Secchi, sá frægari í bandinu gaf líka út dót sem bara Secchi, þ.á.m. 'I Say Yeah' snilldarlagið með Orlando Johnson (sem er ótrúlega fínt stuð, og er pínu einsog 'I'll Be Your Friend' með Robert Owens, nema kom út árinu áður og er miklu meira stuð, og minna introverted "horfið á mig").

Þetta lag kom út 1982 og er kover af samnefndu lagi Automat frá 1978. (Þeir gáfu út geðveika plötu! Kauftana!)

Mito - Droid
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

p.s. Secchi gaurinn gaf seinna út disk sem hét "Da Ya Think I'm Secchi". Fliss.

2. júní, 2007

Lukku Tríó #6


Peter Jacques Band (sjá fyrri færslu) gerir ekki bara lágstemmt rafmagnsdiskó, heldur líka lög fyrir fólk sem vill hlaupa frá skrifstofunni útá götu og dansa í hópi, með tilheyrandi klappi og bindasveifli. Af plötunni 'Dancing In The Street' frá 1985.

Peter Jacques Band - Going Dancing Down The Street
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Jago samanstóð af nokkrum ítölum sem voru líka í mörgum öðrum frægum italo disco böndum: Tony Carrasco var síðarmeir í Klein & M.B.O., og Claudio Donato pródúsaði t.d. lög með discostjörnunni Orlando Johnson. 'I Am Going to Go' kom út 1983 og var rímixað af Frankie Knuckles, en lagið að neðan er Dub útgáfa sem kom út á bootleggaðri vínylsafnplötu.

Jago - I'm Going To Go (dub version)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Boomerang Club Band er, einsog svo mörg önnur ítölsk italo próject, einhverjir algjörlega óþekktir gaurar. En það þýðir ekki að þeir skilji ekki fíling. Frá 1985.

Boomerang Club Band - Dancer
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Um júní 2007

This page contains all entries posted to Musik Kontrapunkt Kontrol in júní 2007. They are listed from oldest to newest.

maí 2007 is the previous archive.

júlí 2007 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.31