
Trax er súpergrúppa Pete Bellotte og Keith Forsey, tveggja stórkostlegra tónlistarhetja, sem báðir unnu með Giorgio Moroder og Harold Faltermeyer. Frá Trax komu bara tvær breiðplötur, 'Watch Out' (1977) og 'Dancing In the Street' (1978), en á þeim eru fáránlega góð lög. Lagið sem ég pósta er af seinni plötunni.
Pete Bellotte var helsti pródúser Giorgio Moroder, var með honum í grúppunum Giorgio & Chris og Children of the Mission (ég skrifaði um þá áður), auk þess að semja marga af langstærstu diskóhitturum Donnu Summer.
Keith Forsey vann með Giorgio Moroder og Harold Faltermeyer, bæði sem pródúser og trommari, en auk þess gaf hann út helling af efni með sjálfum sér. Og svo co-samdi hann textann í 'Flashdance...What A Feeling' með Irene Cara (sem var auðvitað pródúsað af Giorgio Moroder) og '(Dont You) Forget About Me' með Simple Minds.
Þeir eru þokkalegar hetjur, og það eru bara hetjur sem gera stuð jafn prófessjónlega og í þessu lagi.
Trax - Crusader
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com