
Stephan & Nina eru að mörgu leyti einsog Íslands ástsælu Stefán & Eyvi & Nína, mínus Eyvinn. Stephan & Nina eru aðeins eldri, aðeins meira róbót, og hlutfallslega jafn fræg. En aðeins meira kúl.
Stephan Remmler er miklu þekktari sem söngvarinn í synthpoppbandinu frábæra Trio, sem voru frægastir fyrir 'Da-Da-Da'-ið sitt. Þeir störfuðu á milli 1980 og 1985, en lagið sem ég pósta er fyrsta sólóverkefni Stephans og kom út árið 1984. Söngkonan Nina er ekki hin frægari Gabriela "Nena", heldur einhver mädschen eða jungfrau, sem virðist hafa horfið eftir þessa plötu.
Fínt lag til að hlusta á þegar þú skerð niður trufflur eða hristir salatið nokkrum mínútum áður en gestirnir hringja bjöllunni. Undarlega rólegt stress.
Stephan & Nina - Feuerwerk
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
♥ Stephan Remmler á internetinu
RIS-vandamál voru ekki til árið 1983, þökk sé nokkrum hressum ítölum sem elska í músík. Dulítil sál, dulítið diskó, dulítið elektró, heilmikið stuð.
RIS - Love In Music
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Af einhverjum ástæðum varð þetta lag sport-hittari í Chicago einhverntímann í gamla daga, kannski vegna þessa níðþunga manifestó um ást og tónlist. Hlustaðu bara vel á textann, og reyndu að taka eftir því þegar söngkonan er out-of-breath og verður að anda harkalega inn, mjög fínt.