![]()
La Bionda eru ítölsku bræðurnir Angelo og Carmelo La Bionda (en ekki hvað?!), sem gerðu fuuuuuullt af frábærum lögum. Það besta við þá eru hvað lögin eru allskonar, sum eru latin-stuðbombur, önnur ótrúlega hresst píanódiskóstuð, og svo hálf-anal electró (með frekar óspenntri kvenröddu og allt) einsog t.d. 'I Wanna Be Your Lover' sem varð aftur vinsælt fyrir nokkrum árum. Lagið að neðan frá 1978 er stærsti hittarinn, frábært stuð, svo ótrúlega typpalegt, en svo ótrúlega fínt og alvöru á sama tíma. Passar vel við 35.000 gráðu hitann sem strauk mér og gældi við hjartað mitt í dag. Mmm.
La Bionda - One For You, One For Me
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
![]()
Azoto gera ekki bara 'Exalt-Exalt', heldur líka ótrúlega fínt tilfinningadiskó með epískum millikafla, og skrækri útvíddri röddu. Strengjaplokkið minnir ótrúlega á fyrsta lagið þeirra sem var berklaveikisfín útgáfa af júllapartýbombunni 'Havah Nagilah'.
Þetta lag er líka mesti hittari Azoto, búið að vera á óteljandi sumarsafndiskum um allan heim (nema Pottþétt Sumar, skil ekki afhverju). Frá árinu 1979, af sömu plötu og 'Exalt-Exalt', uppáhald Krilla og mín.
Azoto - San Salvador
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
![]()
Ganymed (sjá aðra færslu) eru ótrúlega fyndið band. Sum lögin eru diskó, sum eru skrækjandi hár-rokk, sum eru hálf væmin, en öll eru pínu skrýtin. Frábært band.
Þetta lag er smá singalong en ekki alveg á sama hátt og lögin að ofan. Er aðeins rólegra og ekki jafn æst yfir sjálfu sér, og meiraðsegja með trommusólói. Ég myndi gleðjast óendanlega ef neon-spoilerkittliðið myndi blasta þessu þegar þau spæna upp þvottaplan bensínstöðva landsins. Og heyriði He-Man flugdýrs-skrækinn þarna undir einhversstaðar? (íííík íííík ííííik)
Ganymed - We Like You (The Way You Like Us)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Comments(2)
Eg loggadi mig serstaklega inn i Links i UNIX skelinni minni til ad lata ykkur oll vita ad La Bionda lagid er fokking inTENS. Sem og Halli.
Written 29.05.07 23:07
Kristleifur, takk!
Written 02.06.07 15:04