« Lukku Tríó #3 | Main | Galdrasveitin Gula »

Lukku Tríó #4


Giorgio Moroder er mesti snillingur alheimsins. Þarf ekkert að tala um hann. Þetta lag kom á plötunni 'From Here To Eternity' árið 1977.

Giorgio Moroder - First Hand Experience in Second Hand Love
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Maskio er snillingur sem ég veit ekkert um. Ekkert. Hann gaf stundum út sem Maskio, stundum sem Rollerforce, stundum sem Roller Force. Gaf út frá 1983 til 1987, svo...? Færður upp til himna í björtu dýrlingaljósi? Hvur veit.

Þetta lag er svo ótrúlega kraftmikið. Hann sparkar upp svalahurðinni, klifrar upp á handrið, og gaaaargar útí rokið!

Maskio (Roller Force) - Subway
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Expansives er megaband með þremur ítölum (Franco Rago, Gigi Farina, Giorgio Farina, tvær bræður og annar í fríi, eða eitthvað svoleiðis) sem gerðu líka músík sem 'Lectric Workers, Wanexa, og Message From The Future (mjög gott stöff!). Það er mjög skrýtið að hugsa til þess að meirihluti bestu og mest módern laganna þeirra komu út 1982 eða 1983.

Expansives - Life With You
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

p.s. 12" með þessu lagi kostar $279.05 á GEMM. Fáránlegt.

Comments(2)


Leiklistarnemahópurinn sem vinnur við skúringar hérna á hæðinni, þau heyrðu mig spila SUBWAY og brustu út í trylltan tilfinningadans.

Sumarkaupið þeirra í ár fer í að borga upp nýja svalahurð.

Og sauma nýjar tölur á skyrturifrildin.

Ohh, þetta er falleg mynd sem ég er með í hausnum mínum.