« Lukku Tríó #2 | Main | Lukku Tríó #4 »

Lukku Tríó #3


Ice Cube, einnig þekktur sem O'Shea Jackson, var reiðari rímnahlunkur á sínum fyrri árum, áður en hann flutti til Hollywood og slóst við anakondur í S-Ameríku og fleira hræðilegt.

Á plötunni 'AmeriKKKa's Most Wanted' frá 1990 var hann fjúkandi reiður með froðublautt hár, og rímaði sem svo oft áður um slæma meðhöndlun þeldökkra íbúa Norður Ameríku. Góð plata frá góðum manni, en eitt besta lagið finnst mér þetta:

Ice Cube - Endangered Species (remix)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Main Source eru ekkert svo frægir þrátt fyrir að vera frábærir. Þeir gáfu bara út tvær plötur (1991 og 1994) og fóru svo hver sína leið, en Large Professor (dj-inn í bandinu) varð frægastur fyrir að pródúsa lög með Eric B & Rakim, Nas og Pete Rock & CL Smooth.

Lagið að neðan er af plötunni 'Breaking Atoms' frá 1991, og á henni er t.d. fyrsta lagið sem Nas rappaði í, áður en hann varð sjálfumglaður faraói úr gulli.

Talandi um gull: þetta lag var eitt af þemalögum gyllta Volvosins. Represent!

Main Source - Looking At The Front Door
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Milk Dee er mjóróma og stuttur snillingur sem gerir stutt lög, og er frægastur fyrir að vera annar af bræðrunum í Audio Two sem áttu stutta eins-lags-undrið 'Top Billin', örugglega samplaðasta hip hop lag í heimi. Þeir bræður gerðu lítið af snilld tilað viðhalda frægðinni næstu árin, en systir þeirra MC Lyte varð í staðinn stjarna fjölskyldunnar.

En, svo kom Milk aftur og árið 1994 gaf hann út stuttu plötuna 'Never Dated', og á henni er hið frábæra stutta 'Get Off My Log', sem ég og Njörður spiluðum ó svo oft í gyllta Volvonum back in the dizay.

Milk - Get Off My Log
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)