« Spila þinn leik, elskan | Main | Lukku Tríó #3 »

Lukku Tríó #2


Ganymed eru þýskir geimdiskóræningjar í glansandi silfurbúningum með batteríum, lausum vírum, risa plastskóm, og heimasmurðu nesti. Frábærlega undarlegt, og langt og epískt og allt sem mér finnst fínt við rafmagnsdiskó. Af plötunni 'Future World' frá 1979, sem er troðfull af meiri snilld.

Ganymed - Music Takes Me Higher
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Divine er frægasti klæðskiptingur í heimi. Lék í John Waters myndum með risastórar hárkollur og borðaði hundakúk, og átti góðan feril sem performer, þar sem hann söng lög um sveitt næturlíf og dreggjar mannlífsins. Hvernig er ekki hægt að elska þetta lag frá 1984, þar sem Divine dásamar eigin fegurð með þessari urgandi og surgandi ég-var-að-vakna-eftir-þrettán-daga-absynthe-fyllerí-á-hvolfi röddu?

Divine - I'm So Beautiful
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Peter Jacques Band er eitt af fjölmörgum sköpunarverkum Jacques Petrus, vestur-Indíska snillingsins sem byrjaði ferilinn sem plötusafnari og plötusnúður, en endaði sem mega-pródúser og plötuútgáfurekandi. Hann fékk aragrúa tónlistarfólks tilað performa undir sínum nöfnum, og fékk oftast sjálfur kredit fyrir lagasmíðar og textagerð þrátt fyrir að vera "bara" pródúser (en hann var auðvitað mega-creator og setti allt saman). Auk Peter Jacques Band bjó hann til B.B. & Q. Band (Brooklyn Bronx & Queens Band) sem var líka ótrúleg diskómaskína. Af plötunni 'Fire Night Dance' frá árinu 1979.

Peter Jacques Band - Fly With The Wind (12" Version)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Comments(2)


Fly with the wind er ROSalegt. Leynir mjög meðvitað á sér.

Já, það kom svo ótrúlega mikið sniðugt og fínt frá þessum megapródúser.

Gaur sem heitir Savas Pascalidis rímixaði þetta lag fyrir nokkrum árum, hægði í rauninni bara á því og bætti við þyngri takti. Það er mjög fínt, og dáldið skemmtilega undarlegt. Það kom út á plötu með honum, en það virtist enginn fatta að þetta var ekki "sampl" heldur "edit", þúveist?


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)