« RIS-vandamál úr sögunni | Main | Er þaggi? »

Lukku Tríó #1


Azoto - frábært ítalskt diskó af plötunni 'Disco Fuzz' frá 1979. Aðalgaurinn er Celso Valli, seinna einn af italo disco kóngunum. Eftir diskótímabilið með Azoto færði hann sig yfir í italo disco og pródúsaði og samdi hittara fyrir RAF, Peter Richard og Passengers og fleiri hressa.

Azoto - Exalt-Exalt
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


N.O.I.A. átti undarlegan feril: þeir byrjuðu sem fimm-manna rokkband, en árið 1983 breyttust þeir í þriggja-manna stúdíóband sem fókusaði á italo disco og rafmagn, og áttu nokkra hittara í Evrópu. Einn meðlimanna beilaði yfir í rokk-blús grúppu, annar fór útí experimental elektróník með gítar-fídbakki og "porno-sacred performance" einsog einhver orðaði það svo undarlega, og árið 1994 fóru þeir útí trance og afrískt træbal.

Persónulega finnst mér þetta sorglegur endir, en langbestu árin voru á milli 1983 og 1985, þegar þeir gáfu út mikið af frábæru italo disco, þ.á.m. þetta hér:

N.O.I.A. - Stranger In A Strange Land (Club mix)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Les Femmes Erotiques er einn ítali, Severo Lombardoni, sem hefur örugglega verið í meira en þrjátíu hljómsveitum, langflestum sólóprojectum. Þrátt fyrir mörg góð lög eiga allar þessar hljómsveitir það sameiginlegt að vera fremur óþekktar. Eitt af snilldarlögunum er lagið að neðan, ótrúlega fínt kover frá 1989 af einu helsta dónalagi Serge Gainsbourg.

Les Femmes Erotiques - Je Taime Moi Non Plus
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Comments(7)


Bob:

Exalt Exalt er æði!

Já, mjöööög gott.

Staðfest!

Var að fatta hvernig þú heyrir tónlist. Fallegt, fyndið.

Hi hi.

Exalt-Exalt er pörfekt, besta lag í heimi

Krilli: hlustum á lög í allt sumar! Gras á milli táa, og malakoffsamlokur og kókómjólkur!!!

Jáhá, til er ég.

Þetta er annars besta freaking lag í heimi, Exalt Exalt. Ég þurfti að hætta að vélrita og stökkva hingað inn til að hrópa það yfir veggi og torg.

Fínt nýja lúúk.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)