« Lukku Tríó #4 | Main | Alexander Robotnick »

Galdrasveitin Gula

Japanska ofurrafmagnsbandið Yellow Magic Orchestra var stofnað árið 1978 af Haruomi Hosono, Yukihiro Takahashi, og Ryuichi Sakamoto. Hosono var reyndar aðal í byrjun, hugsaði bandið sem smá hliðarpróject og notaði Takahashi og Sakamoto sem session-músíkanta. Planið varað gera artí bræðing úr traditional asískri tónlist og þeirra-tíma elektróník, en fyrsta platan þeirra varð (óvart) vinsæl, þannig að þeir þrír túruðu með snilldina og voru uppfrá því saman í bandinu.

Þeir notuðu allar rafmagns- og digital græjur sem þeir fundu, sömpluðu, spiluðu og fiktuðu í öllum hljómborðum heimsins, og gáfu út helling af plötum sem gerðu þá vinsæla um allan heim. Þeir hættu offisjallí árið 1984 og fóru allir þrír í sitthvora áttina í sólóheiminum. Ryuichi Sakamoto er þeirra frægastur (bleiknefjamegin), búinn að gera kvikmyndatónlist (vann Óskar og allt), spila mikið með David Sylvian, og í dag er hann meiraðsegja túrandi með Fennesz! (það væri unaður að sjá þá saman...)

Fyrst lag af fyrstu plötunni, 'Yellow Magic Orchestra', frá 1978:

Yellow Magic Orchestra - Tong Poo
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Svo tvö lög af 'Solid Sate Survivor' frá 1979 (fyrra lagið er örugglega klassískasta og frægasta rafmagnsrokkssynthapopplag í alheiminum)

Yellow Magic Orchestra - Rydeen
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Yellow Magic Orchestra - Behind the Mask
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Það er svo yndislegt hvernig tónlistin þeirra er svo ótrúlega allskonar. Diskó, ballöður, brokkandi synthastuð, hetjutónlist, tilfinningadans...júneimit.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)