
"Brother" Jack McDuff spilaði á jazz-organ, og var hvað duglegastur í kringum 1960 og næstu árin þar á eftir, þegar hann gaf út á Atlantic Records, Blue Note, og Chess ásamt fleirum. Það er svo ótrúlegur kraftur og stuð í spileríinu hans, mörg layer af ótrúlega flottum melódíum og mér finnst flest koverin sem hann gerði mikið betri en upprunalega lagið.
Afþví að ég er glaður og það er gott veður þá ætla ég að halda áfram að pósta fílingslögum. Þetta lag verður betra og betra og betra og betra, og er einsog þema grilllyktar og sólhatta, og þornandi bílabóns.
Brother Jack McDuff - Ain't It
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com