« Galdrasveitin Gula | Main | Safnað í sarpinn #1 - Isotonik »

Alexander Robotnick

Alexander Robotnick var skírður Maurizio Dami, og býr til músík, plötusnúðast, pródúsar, semur, rímixar, og gefur út, og það allt orðinn gráhærður og hálf-gamall. Veit ekki alveg hversu gamall, en hann er doldið gamall.

Hann er búinn að gefa út electro, disco, italo disco, og synthpopperí sem Alexander Robotnick frá 1983, og pródúsa undir alvöru nafninu sínu síðan ca 1984. Hann pródúsaði meirihluta útgáfa Fuzz Dance leibelsins (sem gaf út fyrstu tólftommuna hans) og rímixaði restina (liggur við). Þar á meðal gerði hann 'Hesitation' með Mya & The Mirror, og pródúsaði aðra plötu fyrir sömu söngkonu, þá sem Sue Sadlow.

Vegna allra þessara pródúseringa gat hann ekki sinnt eigin plötum, gaf út 1987 og svo ekki fyrr en 1999. Árið 2002 stofnaði hann útgáfu og gaf loksins út safnplötur með sjálfum sér með lögum frá tímabilinu 1982-84, mestmegnis lög sem hann samdi áður en ferillinn byrjaði, en innámilli nokkur nýrri (og meira módern) lög. Mér finnst gamla dótið hans miklu skemmtilegra, og hér er fyrsta lagið hans:

Alexander Robotnick - Problemés d'amour (demo)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Árið 2005 kom út safnplatan 'Krypta 1982 (Rare Robotnicks Part 2)', og þar er þetta lag frá 1982, ekki týpískt fyrir hann þó það sé í hans stíl, en óóóóótrúlega flott:

Alexander Robotnick - Its Not My Life
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Og svo ótrúlega fínt af tólftommu frá 1999, og hljómar einsog dótið hans frá 1983:

Alexander Robotnick - Les Grands Voyages de L'amour
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Set meira með honum seinna, og þá kannski sem hann pródúsaði fyrir aðra.

Comments(4)


Allt flott, en sérstaklega er Les Grands Voyages er gjöðveikt, þetta er svona lag sem maður vissi að hlyti að vera til áður en maður heyrir það.

Takk fyrir takk

Ég setti þetta hingað eiginlega fyrir þig.

Pingar bloggid thig thegar thad eru sett komment a gamlar faerslur?

Hlustadu a Leoncie - "Enginn Prikantur Her" eins og thetta se Alexander Robotnick lag. Lagid er til a Youtube.

Heyrirdu fegurdina?

Var búinn að hlusta á lagið áður, en heyrði það núna.

Algjörlega rétt hjá þér.