« apríl 2007 | Aðalsíða | júní 2007 »

maí 2007 Safn

30. maí, 2007

Stuðkompaníið

Lime eru hjónin Denis og Denyse LePage, og þau eru óóóótrúleg. Algjörlega self-made tónlistarhetjur, hálf ignoruð af plötuleibelum í byrjun. Þau voru bæði í Jazz senunni í Montreal, hann í paunk- og rokkböndum og allskonar fikteríi, og pródúsaði nokkrar plötur fyrir aðra áður en Limedæmið byrjaði fyrir alvöru (þ.á.m. Kat Mandu, sem er algjör snilld). Þau hjónin voru svo bæði að fikta í músík, og byggðu stúdíó í stofunni sinni (!) tilað geta búið til þá músík sem þau vildu hlusta á! Alltof fallegt. Þau urðu fljótt vinsæl, sérstaklega í gay senunni í San Francisco og New York, og up-and-coming discó/rafmagnsmúsíkursenunni.. Einsog tíðkaðist í ðe eitís (og var mjög algengt með italo disco) þá réðu þau unga og fallega leikara tilað performa í músíkvídjóum og á tónleikum, en þau sungu alltaf allt sjálf. (alveg sama formúla og Black Box, og svo var artistinn Den Harrow sex mismunandi söngvarar...)

Enníveis, þau eru örugglega eitt frægasta kanadízka stuðpar sögunnar, og eru búin að gefa út svo óóóótrúlega mikið af músík (og koverin svo ótrúlega fín og skræpótt).

Lime - Babe, We're Gonna Love Tonight
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Kommon, settu lagið á rípít, ég veit þú viltða.


Garçons voru þrír frakkar í fíling, sem með söngkonunni Marie voru líka í bandinu 'Marie Et Les Garçons'. Sú samsetning var aðeins meira "vinsælli" (ef vinsældir mælast í túrum og þannig), og þau hituðu upp fyrir Talking Heads og Patti Smith og fleiri. Sem Garçons gáfu þeir bara út eina plötu og eina smáskífu (í nokkrum útgáfum), og sem Marie Et Les Garçons gáfu þeir líka út eina plötu og eina smáskífu. Ekkert voðalega afkastamikil grúppa af fólki (störfuðu bara á milli 1978 og 1980) en samt frekar fínir tónlistarmenn (og -kona).

Garçons - French Boy
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

26. maí, 2007

Lukku Tríó #5


La Bionda eru ítölsku bræðurnir Angelo og Carmelo La Bionda (en ekki hvað?!), sem gerðu fuuuuuullt af frábærum lögum. Það besta við þá eru hvað lögin eru allskonar, sum eru latin-stuðbombur, önnur ótrúlega hresst píanódiskóstuð, og svo hálf-anal electró (með frekar óspenntri kvenröddu og allt) einsog t.d. 'I Wanna Be Your Lover' sem varð aftur vinsælt fyrir nokkrum árum. Lagið að neðan frá 1978 er stærsti hittarinn, frábært stuð, svo ótrúlega typpalegt, en svo ótrúlega fínt og alvöru á sama tíma. Passar vel við 35.000 gráðu hitann sem strauk mér og gældi við hjartað mitt í dag. Mmm.

La Bionda - One For You, One For Me
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Azoto gera ekki bara 'Exalt-Exalt', heldur líka ótrúlega fínt tilfinningadiskó með epískum millikafla, og skrækri útvíddri röddu. Strengjaplokkið minnir ótrúlega á fyrsta lagið þeirra sem var berklaveikisfín útgáfa af júllapartýbombunni 'Havah Nagilah'.

Þetta lag er líka mesti hittari Azoto, búið að vera á óteljandi sumarsafndiskum um allan heim (nema Pottþétt Sumar, skil ekki afhverju). Frá árinu 1979, af sömu plötu og 'Exalt-Exalt', uppáhald Krilla og mín.

Azoto - San Salvador
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Ganymed (sjá aðra færslu) eru ótrúlega fyndið band. Sum lögin eru diskó, sum eru skrækjandi hár-rokk, sum eru hálf væmin, en öll eru pínu skrýtin. Frábært band.

Þetta lag er smá singalong en ekki alveg á sama hátt og lögin að ofan. Er aðeins rólegra og ekki jafn æst yfir sjálfu sér, og meiraðsegja með trommusólói. Ég myndi gleðjast óendanlega ef neon-spoilerkittliðið myndi blasta þessu þegar þau spæna upp þvottaplan bensínstöðva landsins. Og heyriði He-Man flugdýrs-skrækinn þarna undir einhversstaðar? (íííík íííík ííííik)

Ganymed - We Like You (The Way You Like Us)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

23. maí, 2007

Safnað í sarpinn #1 - Isotonik

Isotonik - Different Strokes
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

'Different Strokes' er old skool hardcore klassík frá 1991, sem flestir sem fóru á reif, hlustuðu á B-Hliðina eða street-dönsuðu í félagsmiðstöðinni sinni í gamla daga muna vel eftir.

Aðalvókallinn ('Different Strokes, for different folks, whatever makes you...happpyyyyy') er samplaður frá ofurhousebandinu Ten City, úr lagi frá 1990:

Ten City - Whatever Makes You Happy
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Píanómillikaflinn er úr upprunalegu útgáfunni af þessu lagi með Richie Rich frá 1989 - ég ákvað að hafa rímixið því söngurinn (sem kemur úr enn öðru lagi) var samplaður í Carl Cox snilldinni 'I Want You (Forever)'.

Richie Rich feat. Ralphi Rosario - You Used to Salsa (remix of Salsa House)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Alexander Robotnick

Alexander Robotnick var skírður Maurizio Dami, og býr til músík, plötusnúðast, pródúsar, semur, rímixar, og gefur út, og það allt orðinn gráhærður og hálf-gamall. Veit ekki alveg hversu gamall, en hann er doldið gamall.

Hann er búinn að gefa út electro, disco, italo disco, og synthpopperí sem Alexander Robotnick frá 1983, og pródúsa undir alvöru nafninu sínu síðan ca 1984. Hann pródúsaði meirihluta útgáfa Fuzz Dance leibelsins (sem gaf út fyrstu tólftommuna hans) og rímixaði restina (liggur við). Þar á meðal gerði hann 'Hesitation' með Mya & The Mirror, og pródúsaði aðra plötu fyrir sömu söngkonu, þá sem Sue Sadlow.

Vegna allra þessara pródúseringa gat hann ekki sinnt eigin plötum, gaf út 1987 og svo ekki fyrr en 1999. Árið 2002 stofnaði hann útgáfu og gaf loksins út safnplötur með sjálfum sér með lögum frá tímabilinu 1982-84, mestmegnis lög sem hann samdi áður en ferillinn byrjaði, en innámilli nokkur nýrri (og meira módern) lög. Mér finnst gamla dótið hans miklu skemmtilegra, og hér er fyrsta lagið hans:

Alexander Robotnick - Problemés d'amour (demo)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Árið 2005 kom út safnplatan 'Krypta 1982 (Rare Robotnicks Part 2)', og þar er þetta lag frá 1982, ekki týpískt fyrir hann þó það sé í hans stíl, en óóóóótrúlega flott:

Alexander Robotnick - Its Not My Life
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Og svo ótrúlega fínt af tólftommu frá 1999, og hljómar einsog dótið hans frá 1983:

Alexander Robotnick - Les Grands Voyages de L'amour
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Set meira með honum seinna, og þá kannski sem hann pródúsaði fyrir aðra.

22. maí, 2007

Galdrasveitin Gula

Japanska ofurrafmagnsbandið Yellow Magic Orchestra var stofnað árið 1978 af Haruomi Hosono, Yukihiro Takahashi, og Ryuichi Sakamoto. Hosono var reyndar aðal í byrjun, hugsaði bandið sem smá hliðarpróject og notaði Takahashi og Sakamoto sem session-músíkanta. Planið varað gera artí bræðing úr traditional asískri tónlist og þeirra-tíma elektróník, en fyrsta platan þeirra varð (óvart) vinsæl, þannig að þeir þrír túruðu með snilldina og voru uppfrá því saman í bandinu.

Þeir notuðu allar rafmagns- og digital græjur sem þeir fundu, sömpluðu, spiluðu og fiktuðu í öllum hljómborðum heimsins, og gáfu út helling af plötum sem gerðu þá vinsæla um allan heim. Þeir hættu offisjallí árið 1984 og fóru allir þrír í sitthvora áttina í sólóheiminum. Ryuichi Sakamoto er þeirra frægastur (bleiknefjamegin), búinn að gera kvikmyndatónlist (vann Óskar og allt), spila mikið með David Sylvian, og í dag er hann meiraðsegja túrandi með Fennesz! (það væri unaður að sjá þá saman...)

Fyrst lag af fyrstu plötunni, 'Yellow Magic Orchestra', frá 1978:

Yellow Magic Orchestra - Tong Poo
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Svo tvö lög af 'Solid Sate Survivor' frá 1979 (fyrra lagið er örugglega klassískasta og frægasta rafmagnsrokkssynthapopplag í alheiminum)

Yellow Magic Orchestra - Rydeen
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Yellow Magic Orchestra - Behind the Mask
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Það er svo yndislegt hvernig tónlistin þeirra er svo ótrúlega allskonar. Diskó, ballöður, brokkandi synthastuð, hetjutónlist, tilfinningadans...júneimit.

15. maí, 2007

Lukku Tríó #4


Giorgio Moroder er mesti snillingur alheimsins. Þarf ekkert að tala um hann. Þetta lag kom á plötunni 'From Here To Eternity' árið 1977.

Giorgio Moroder - First Hand Experience in Second Hand Love
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Maskio er snillingur sem ég veit ekkert um. Ekkert. Hann gaf stundum út sem Maskio, stundum sem Rollerforce, stundum sem Roller Force. Gaf út frá 1983 til 1987, svo...? Færður upp til himna í björtu dýrlingaljósi? Hvur veit.

Þetta lag er svo ótrúlega kraftmikið. Hann sparkar upp svalahurðinni, klifrar upp á handrið, og gaaaargar útí rokið!

Maskio (Roller Force) - Subway
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Expansives er megaband með þremur ítölum (Franco Rago, Gigi Farina, Giorgio Farina, tvær bræður og annar í fríi, eða eitthvað svoleiðis) sem gerðu líka músík sem 'Lectric Workers, Wanexa, og Message From The Future (mjög gott stöff!). Það er mjög skrýtið að hugsa til þess að meirihluti bestu og mest módern laganna þeirra komu út 1982 eða 1983.

Expansives - Life With You
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

p.s. 12" með þessu lagi kostar $279.05 á GEMM. Fáránlegt.

14. maí, 2007

Lukku Tríó #3


Ice Cube, einnig þekktur sem O'Shea Jackson, var reiðari rímnahlunkur á sínum fyrri árum, áður en hann flutti til Hollywood og slóst við anakondur í S-Ameríku og fleira hræðilegt.

Á plötunni 'AmeriKKKa's Most Wanted' frá 1990 var hann fjúkandi reiður með froðublautt hár, og rímaði sem svo oft áður um slæma meðhöndlun þeldökkra íbúa Norður Ameríku. Góð plata frá góðum manni, en eitt besta lagið finnst mér þetta:

Ice Cube - Endangered Species (remix)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Main Source eru ekkert svo frægir þrátt fyrir að vera frábærir. Þeir gáfu bara út tvær plötur (1991 og 1994) og fóru svo hver sína leið, en Large Professor (dj-inn í bandinu) varð frægastur fyrir að pródúsa lög með Eric B & Rakim, Nas og Pete Rock & CL Smooth.

Lagið að neðan er af plötunni 'Breaking Atoms' frá 1991, og á henni er t.d. fyrsta lagið sem Nas rappaði í, áður en hann varð sjálfumglaður faraói úr gulli.

Talandi um gull: þetta lag var eitt af þemalögum gyllta Volvosins. Represent!

Main Source - Looking At The Front Door
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Milk Dee er mjóróma og stuttur snillingur sem gerir stutt lög, og er frægastur fyrir að vera annar af bræðrunum í Audio Two sem áttu stutta eins-lags-undrið 'Top Billin', örugglega samplaðasta hip hop lag í heimi. Þeir bræður gerðu lítið af snilld tilað viðhalda frægðinni næstu árin, en systir þeirra MC Lyte varð í staðinn stjarna fjölskyldunnar.

En, svo kom Milk aftur og árið 1994 gaf hann út stuttu plötuna 'Never Dated', og á henni er hið frábæra stutta 'Get Off My Log', sem ég og Njörður spiluðum ó svo oft í gyllta Volvonum back in the dizay.

Milk - Get Off My Log
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

12. maí, 2007

Lukku Tríó #2


Ganymed eru þýskir geimdiskóræningjar í glansandi silfurbúningum með batteríum, lausum vírum, risa plastskóm, og heimasmurðu nesti. Frábærlega undarlegt, og langt og epískt og allt sem mér finnst fínt við rafmagnsdiskó. Af plötunni 'Future World' frá 1979, sem er troðfull af meiri snilld.

Ganymed - Music Takes Me Higher
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Divine er frægasti klæðskiptingur í heimi. Lék í John Waters myndum með risastórar hárkollur og borðaði hundakúk, og átti góðan feril sem performer, þar sem hann söng lög um sveitt næturlíf og dreggjar mannlífsins. Hvernig er ekki hægt að elska þetta lag frá 1984, þar sem Divine dásamar eigin fegurð með þessari urgandi og surgandi ég-var-að-vakna-eftir-þrettán-daga-absynthe-fyllerí-á-hvolfi röddu?

Divine - I'm So Beautiful
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Peter Jacques Band er eitt af fjölmörgum sköpunarverkum Jacques Petrus, vestur-Indíska snillingsins sem byrjaði ferilinn sem plötusafnari og plötusnúður, en endaði sem mega-pródúser og plötuútgáfurekandi. Hann fékk aragrúa tónlistarfólks tilað performa undir sínum nöfnum, og fékk oftast sjálfur kredit fyrir lagasmíðar og textagerð þrátt fyrir að vera "bara" pródúser (en hann var auðvitað mega-creator og setti allt saman). Auk Peter Jacques Band bjó hann til B.B. & Q. Band (Brooklyn Bronx & Queens Band) sem var líka ótrúleg diskómaskína. Af plötunni 'Fire Night Dance' frá árinu 1979.

Peter Jacques Band - Fly With The Wind (12" Version)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Spila þinn leik, elskan

Þeir sem eru kúl vita hverjir sömpluðu þetta lag.

Brakandi ferskt súkkulaðileðurkaffi.

Barry White - Playing Your Game Baby
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Er þaggi?

"Brother" Jack McDuff spilaði á jazz-organ, og var hvað duglegastur í kringum 1960 og næstu árin þar á eftir, þegar hann gaf út á Atlantic Records, Blue Note, og Chess ásamt fleirum. Það er svo ótrúlegur kraftur og stuð í spileríinu hans, mörg layer af ótrúlega flottum melódíum og mér finnst flest koverin sem hann gerði mikið betri en upprunalega lagið.

Afþví að ég er glaður og það er gott veður þá ætla ég að halda áfram að pósta fílingslögum. Þetta lag verður betra og betra og betra og betra, og er einsog þema grilllyktar og sólhatta, og þornandi bílabóns.

Brother Jack McDuff - Ain't It
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

4. maí, 2007

Lukku Tríó #1


Azoto - frábært ítalskt diskó af plötunni 'Disco Fuzz' frá 1979. Aðalgaurinn er Celso Valli, seinna einn af italo disco kóngunum. Eftir diskótímabilið með Azoto færði hann sig yfir í italo disco og pródúsaði og samdi hittara fyrir RAF, Peter Richard og Passengers og fleiri hressa.

Azoto - Exalt-Exalt
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


N.O.I.A. átti undarlegan feril: þeir byrjuðu sem fimm-manna rokkband, en árið 1983 breyttust þeir í þriggja-manna stúdíóband sem fókusaði á italo disco og rafmagn, og áttu nokkra hittara í Evrópu. Einn meðlimanna beilaði yfir í rokk-blús grúppu, annar fór útí experimental elektróník með gítar-fídbakki og "porno-sacred performance" einsog einhver orðaði það svo undarlega, og árið 1994 fóru þeir útí trance og afrískt træbal.

Persónulega finnst mér þetta sorglegur endir, en langbestu árin voru á milli 1983 og 1985, þegar þeir gáfu út mikið af frábæru italo disco, þ.á.m. þetta hér:

N.O.I.A. - Stranger In A Strange Land (Club mix)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Les Femmes Erotiques er einn ítali, Severo Lombardoni, sem hefur örugglega verið í meira en þrjátíu hljómsveitum, langflestum sólóprojectum. Þrátt fyrir mörg góð lög eiga allar þessar hljómsveitir það sameiginlegt að vera fremur óþekktar. Eitt af snilldarlögunum er lagið að neðan, ótrúlega fínt kover frá 1989 af einu helsta dónalagi Serge Gainsbourg.

Les Femmes Erotiques - Je Taime Moi Non Plus
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

RIS-vandamál úr sögunni

Stephan & Nina eru að mörgu leyti einsog Íslands ástsælu Stefán & Eyvi & Nína, mínus Eyvinn. Stephan & Nina eru aðeins eldri, aðeins meira róbót, og hlutfallslega jafn fræg. En aðeins meira kúl.

Stephan Remmler er miklu þekktari sem söngvarinn í synthpoppbandinu frábæra Trio, sem voru frægastir fyrir 'Da-Da-Da'-ið sitt. Þeir störfuðu á milli 1980 og 1985, en lagið sem ég pósta er fyrsta sólóverkefni Stephans og kom út árið 1984. Söngkonan Nina er ekki hin frægari Gabriela "Nena", heldur einhver mädschen eða jungfrau, sem virðist hafa horfið eftir þessa plötu.

Fínt lag til að hlusta á þegar þú skerð niður trufflur eða hristir salatið nokkrum mínútum áður en gestirnir hringja bjöllunni. Undarlega rólegt stress.

Stephan & Nina - Feuerwerk
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Stephan Remmler á internetinu


RIS-vandamál voru ekki til árið 1983, þökk sé nokkrum hressum ítölum sem elska í músík. Dulítil sál, dulítið diskó, dulítið elektró, heilmikið stuð.

RIS - Love In Music
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Af einhverjum ástæðum varð þetta lag sport-hittari í Chicago einhverntímann í gamla daga, kannski vegna þessa níðþunga manifestó um ást og tónlist. Hlustaðu bara vel á textann, og reyndu að taka eftir því þegar söngkonan er out-of-breath og verður að anda harkalega inn, mjög fínt.

3. maí, 2007

Vor í líkamanum okkar

cynthiavorbodi.jpg

Blandaðu saman alltofmiklum tilfinningum, opnum Ferrari, brattri fjallshlíð, hraðaksri, trefli sem fýkur og festist í tré, keisaradæminu í Norður-Slésvík, flöktandi kertaljósi í kastala, rigningu, endurminningum, legghlífum, blautum froðu-krullum, stórum synthesizer, þekkingu á Eurovision, og góðu plötusafni með nýjasta diskóinu.

Og hringdu svo í söngkonu með lamaða efrivör, helst sem er nývöknuð úr dái eftir að hafa fundist við rætur fjallsins (manstu: Ferrari, trefill, hraðakstur, Norður-Slésvík), og alin upp af úlfum, og svo síðar mállausum úlfaveiðimanni.

Þá ertu kominn hálfa leiðina að vorboðanum sem er Cynthia, anno 1984, year of the hibiscus.

Cynthia - Springtime
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

psst. ég meina, hlustaðu á hvernig hún segir "show me"...scchhhhoouuuuu me...ótrúlegt...

2. maí, 2007

Trax í dag!

Trax er súpergrúppa Pete Bellotte og Keith Forsey, tveggja stórkostlegra tónlistarhetja, sem báðir unnu með Giorgio Moroder og Harold Faltermeyer. Frá Trax komu bara tvær breiðplötur, 'Watch Out' (1977) og 'Dancing In the Street' (1978), en á þeim eru fáránlega góð lög. Lagið sem ég pósta er af seinni plötunni.

Pete Bellotte var helsti pródúser Giorgio Moroder, var með honum í grúppunum Giorgio & Chris og Children of the Mission (ég skrifaði um þá áður), auk þess að semja marga af langstærstu diskóhitturum Donnu Summer.

Keith Forsey vann með Giorgio Moroder og Harold Faltermeyer, bæði sem pródúser og trommari, en auk þess gaf hann út helling af efni með sjálfum sér. Og svo co-samdi hann textann í 'Flashdance...What A Feeling' með Irene Cara (sem var auðvitað pródúsað af Giorgio Moroder) og '(Dont You) Forget About Me' með Simple Minds.

Þeir eru þokkalegar hetjur, og það eru bara hetjur sem gera stuð jafn prófessjónlega og í þessu lagi.

Trax - Crusader
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Um maí 2007

This page contains all entries posted to Musik Kontrapunkt Kontrol in maí 2007. They are listed from oldest to newest.

apríl 2007 is the previous archive.

júní 2007 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.31