
Ó mæ.
So quietly I yell
It's my time now...
The Units. Ólýsanlega gott sjö-manna synthapaunk frá San Francisco. Bandið var stofnað sem artý-band 1978, og á þeim sex árum sem bandið lifði gekk allskonar á: þeir breyttust úr sjö-manna súpersveit í tveggja-manna band, hættu saman, byrjuðu saman, misstu trommarann í sama túr og tveir aðrir meðlimir bættust við, túruðu með OMD, hituðu upp fyrir Ultravox, Gary Numan og Soft Cell, og gáfu (auðvitað) út fullt af frábæru stöffi, en urðu aldrei frægir. Hættu svo 1984 eftir að plötuleibelið drap plötuna þeirra.
Lagið að neðan er af 7 tommunni "Warm Moving Bodies" frá 1979.
The Units - i-Night.
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Ég þori að veðja að þetta er bæði betra, og allt-allt öðruvísi en þú bjóst við.
Hér er svo allt sem þú þarft að vita um The Units: synthpunk.org/units/
Comments(2)
I can dig it. Prog-paunk liggur við.
Written 24.04.07 13:43
Húllas, þetta er flott
Written 03.05.07 11:56