« Sumarpartý hjá Júlla Brúna! | Main | Trax í dag! »

Taktu á mér

Little Brother er mjög skemmtileg hip hop grúppa sem gaf út mjög góða plötu 2005 sem hét 'The Minstrel Show'. Ég sá þá læv þegar þeir, ásamt Big Daddy Kane, hituðu upp fyrir MF Doom, og þeim, (aftur) ásamt Big Daddy Kane, tókst algjörlega að stela sjóvinu.

Á mæspeisprófílnum þeirra rakst ég á kover sem Phonte, einn þriðji Little Brother, gerði af 'Take On Me' eftir uppáhalds A-Ha. Ég spenntist upp og bjóst við einhverju hræðilegu, en finnst þetta frekar fyndið og nokkuð fínt. Kannski finnst mér það fínt einmitt útaf því hversu hrrrræðilegt ég hélt að þetta yrði + að ég bjóst við því að næsta 'Take On Me' kover sem ég heyrði væri eitthvað háskólarokk, en þetta finnst mér bera ákveðna (samt skemmtilega undarlega) virðingu fyrir original laginu, þeir vanda sig að syngja og svoleiðis, setja smá sál í útgáfuna sína. Eru bara að pay some respect, og mér finnst það kjút.

Phonte (Little Brother) - Take on Me
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Little Brother á internetinu
Little Brother á mæspeis

Comments(2)


vááááá hvað þetta er fínt
ég elska sko little brother, þú ógeðslega heppinn að hafa séð þá live!

Ég sá þá hita upp fyrir MF Doom, sem var mjög slappur, en Little Brother voru frábærir. Og svo var Big Daddy Kane líka að hita upp, í rauðu leðurdressi, og það er held ég eitt besta sjóv sem ég hef séð á ævinni!


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)