
Nú er loksins orðið hlýtt nokkra daga í röð. Borgir fyllast af strigaskóabraki og hundraðkallaskrjáfi, pulsugrilllykt með smá kótilettuilmi leggst yfir kósí íbúðahverfi, nágrannar sveðja sér leið í gegnum limgerði til að fá bita, og allir eru í fíling.
En hver er í mesta fílingnum? Julius Brown, that's who. Á samskonar degi fyrir 24 árum síðan (1983) reis hann úr rekkju og sagði "Í dag ætla ég að búa til sumarbyrjunarþema".
Og honum tókst það, sniff.
Julius Brown - Party
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Comments(5)
Nuss, maður þarf ekkert grill með svona funheitt lag!
Written 30.04.07 07:26
Wrahahaha, Júlli Brúni ?! Ég fékk nú bara bakflæði af hlátri ... var hann aldrei kallaður DownTown Julius Brown? Júlli Brúni úr Bænum? Þvílíkur skellihlátur :D
Þetta er besti júllinn síðan Original King Julian (Sacha Baron Cohen) mætti á svæðið í teiknimyndinni Madagascar.
En þessi Júlli er greinilega ódýra týpan af Giorgio Moroder - sem er jákvætt!
Written 30.04.07 08:11
Heh, þetta er æði
Written 02.05.07 06:52
Já allir þrír: þetta ER æði.
Written 02.05.07 19:46
það er ótrúlegt ÞETTA LAG ER SVO MIKIÐ HALLI
Written 03.05.07 11:14