« Minningahornið #2 | Main | Plastic Bertrand »

Stjarnan og XL - þarf hjálp! ***uppfært***

hjálp

***uppfært með draum-upplýsingum***

Árin 1989 til 1992, þegar ég var í 7. til 10. bekk í Foldaskóla, var útvarpsþáttur á Stjörnunni sem spilaði glænýja danstónlist, og mig minnir að hafi heitið XL.

Mig minnir líka að umsjónarmaður þáttarins hafi verið Pétur Árnason --sá hinn sami og gerði tónlist undir nafninu Soul Control, og átti tvö lög á IceRave-- en það er alveg líklegt að ég sé að ringla allskonar upplýsingum saman.

Hét hann ekki Ómar Friðleifsson?

Svo er ég (næstum) handviss að hann hafi verið með kvikmyndaþátt í útvarpinu, jafnvel Bylgjunni, sem hét Hvíta tjaldið.

Ég líka mjög viss um hann hafi svo farið að vinna fyrir SAMbíóin, og verið sá sem talaði oft inná auglýsingar.

Ég veit að það er gríðarlega ólíklegt að margir muni eftir þessum þætti. Njörður vinur minn man eftir honum, en ég veit ekki um neinn annan sem man.

Ástæðan fyrir því að ég spyr, er að ég hef aldrei hætt að hugsa um þennan þátt. Í honum heyrði ég allskonar lög sem ég hlusta ennþá á, og eru algjör klassík fyrir mig. Ég man eftir að vera inná skrifstofu í Fjörgyn (félagsmiðstöðinni), standandi uppá stól við útvarpstækið, sveittur að taka upp þáttinn. Gat nefnilega ekki misst af opnu húsi, þar sem ég spilaði billjard, bruddi piparbrjóstsykra, og tók heimatilbúna snúninga í borðtennis, og sameinaði því uppáhöldin mín.

Ég á nokkrar þvældar og margspilaðar kassettur í kassa í geymslunni hjá mömmu, en þegar ég fór í gegnum þær síðast --sem er fyrir mjöööög mörgum árum-- fann ég ekkert sem hjálpaði.

Aftur:
- útvarpsþáttur á Stjörnunni, 1990-1992
- hét XL (eða eitthvað í líkingu við það)
- spilaði glænýja dansmúsík
- umsjónarmaðurinn hét Pétur Árnason
- Ómar Friðleifsson
- var seinna með Hvíta Tjaldið, útvarpsþátt um kvikmyndir
- talaði inná auglýsingar fyrir SAMbíóin

Eitthvað þarna er rétt, eitthvað er vitlaust, en það hlýtur einhver að muna eftir þessum þætti.

Hér er eitt af lögunum sem ég man eftir að hafa heyrt í þættinum, og er búið að glymja í hausnum mínum svooo leeeengiiiiii. Ég heyrði það útum bílglugga fyrir einhverjum árum og fékk *svitn*, og heyrði það svo í skóbúð hér í NY og stífnaði upp, en mundi aldrei hvað gellan hét. Svo dreymdi mig fyrir einhverjum mánuðum (ég sver það!) og fann það svo og KEYPTI á emusic.com. Gvuð blessi drauma og internetið.

Corina - Temptation (1991)
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Ef þú ert gamall og gráhærður einsog ég, og manst eftir að hafa heyrt þetta lag þegar í útvarpinu þegar þú varst meiri úllíngur, þá manstu örugglega eftir þættinum. (finnst líka stórkostlegt að lagið er allsstaðar flokkað undir freestyle)

Comments(5)


The Ox:

U Looking for da Man ?

Já, það væri geðveikt gaman að fá smá bio og vita hvað hann er búinn að vera að gera síðustu ár. Hann er örugglega ábyrgur fyrir því að gera mörghundruð íslenska úllínga að danstónlistarfíklum og plötusnúðum...

The Ox:

The Ox = Ommi = Ómar Friðleifsson

Þetta er ég og þakka þér hlý orð, skemmtilegt að sjá hvað heimurinn er lítill , ég hef verið að fylgjast með snillingi þarna úti sem tekur Geðveikar myndir Sigurjón að nafni mér skilst að þið þekkist : ) rataði inn á hann í gegnum Hagnaðinn kuningja minn sem ég kynntist í gegnum Danna vinnufélaga og Vin

Og ekki má gleyma í DÝRKA NYC besta borg í heimi komið þangað 8 sinnum og er kominn með heimþrá þangað ætlunin að fara með eldri drenginn minn aftur þangað í Haust.
En allvega éghef verið að vinna í Sambíónum í DVD innfutningi og ´seð um leigurnar að selja þeim ennig verið mikið í erlendum samskiptum og er með annan´fótinn í kvikmyndadeildinni að fara sjá og kaupa myndir á mörkuðum eins og Cannes , Berlin og AFM í LA osfv

Hvað varðar tónlist gafst ég upp að Radio Dj vinnu og fjölskyldu minnar vegna en hef alltaf verið á kafi í allskonar tónlst aðalega Dans , RB , Rapp þó annað eins og pop og Indy detti inn auðvitað. Er að detta big time inni í Elektro senuna og þar er vinur minn Margeir allráðandi eða DJ Jack Schidt :)

Ef þú villt hafa samband við mig þá er póstfangið mitt þarna hjá þér so just holla back : )

Later Skater

Meira forvitinn þá er hægt að lesa þetta ég er nú reyndar nýbyrjaður á þessari vitleysu he he

http://ommi.blog.is/blog/ommi/

Sjiiiit, gaman að lesa þetta. Þú ert hetja. Ættir að fá Fálkaorðuna.

The Ox:

Fálkaorðuna HAHAHA
Já kanski fyrst að heimavinnandi húsmæður fá hana.

En það væri gaman að segja þér frá þessum tímum sem átti að reka mig eftir hvern þátt á sunnudögum af því ég spilaði svo mikið rapp og danstónlist en á þessum tíma þótti ekki boðlegt að spila danstónlist nema um helgar á næturvöktum og þá lög sem fólk þekkti.

Margt svona sem maður þurfti að yfirstiga.

Well thats for later my friend.

Skater


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)