
Þegar ég var í 9. eða 10. bekk þá varð Acid Jazz það heitasta af öllu brennsjóðheitu. Meiraðsegja stelpur, sem framað þessu fíluðu bara afmælisgjafasafndiska með diskói eða úr Now! seríunni (og auðvitað 'Girls & Boys' með Blur) fíluðu Acid Jazz, og margar sögðust meiraðsegja vera farnar að fíla djass. Gisp!
Allir pre-hipsterar og pre-listaháskólanemar brunuðu beint í Skífuna (foj!) að kaupa safndiskinn "Acid Jazz vol. 1" en í æsingnum keyptu einhverjir vol. 2 eða 3 sem voru öðruvísi skræpóttir, og voru --ó boj-- ekki með laginu sem varð flaggberi Acid Jazz hreyfingarinnar á Íslandi, laginu sem var svo gott að enginn mundi hvað það hét.
"Salvör hin síkadelízka,
með þitt málaða fés,
Salvör hin síkadelízka,
bjarg þú mér."
Lagið var of kors 'Psychedelic Sally' í flutningi Eddie Jefferson, og það er eina lagið sem ég man eftir af þessum diskum, og fyrsta lagið sem ég hugsa um þegar einhver miðaldra hiffsterinn veifar taglinu og segir "asiddjass". Mér fannst þessar 2 mínútur og 48 sekúndur fullkomnar, og finnst lagið auðvitað ennþá stuð. Minnir mig á strætóferðir uppí Breiðholt, og Davíð litla að spila lagið í græjunum hennar Berthu. Hah.
Eddie Jefferson - Psychedelic Sally
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Útgáfan að ofan er auðvitað megahress, og ekkert skrýtið að ráðvilltir íslenzkir úllingar (einsog undirritaður) hafi tekið þessu 20+ ára lagi fagnandi (burt Herramenn og NýDönsk!). Hr. Jefferson leyfir laginu sjálfu, með sitt næstumþví off-key bít, að draga sig áfram, og "vóóóóóóóóúúúúh"-ið hans víbrar svo frábærlega.
Auðvitað hafa margir snillingar koverað þetta lag, og sumum tókst með mikilli nákvæmni og þrautsegju að draga gjörsamlega allt stuð úr laginu, þannig að eftir er einhver sorgleg brunarúst, og ekki viljum við hlusta á það. Svei!
Hér er ein önnur skemmtileg útgáfa sem er ólík þannig að söngvarinn keyrir lagið áfram með sálinni, og "vóh vóh vóh vóh" í staðinn fyrir eitt langt. Svo kemur mjög flott wingalingalinga eftir 28 sekúndur, dáldið dreamy, en ótrúlega fínt.
Útgáfan að ofan er fyrir ævintýramenn; útgáfan hér að neðan er fyrir fjölskyldumenn.
Billy Paul - Psychedelic Sally
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
p.s. keyptu diskinn!
Comments(2)
Djöfull man ég eftir þessu lagi. Um leið og ég las ´Acid Jazz´ skaust þetta lag í huga minn. Enda eina lagið af þessum disk sem ég man eftir!
Written 23.04.07 20:33
Heh, einmitt það sem ég meinti! Þetta lag ER Acid Jazz.
Written 24.04.07 00:40