« Stjarnan og XL - þarf hjálp! ***uppfært*** | Main | Léttur miðdagsbræðingur »

Plastic Bertrand

Plastic Bertrand er snillingur. Hann er örugglega frægastur fyrir semi-paunklagið 'Ça Plane Pour Moi' frá árinu 1977, sem hefur m.a.s. verið koverað af 90s ofurstirninu Leila K. Árið 1987 fór hann á Eurovision fyrir hönd Lúxemborgar og performaði þar snilldarlagið 'Amour Amour'. Lagið endaði í næstsíðasta sæti, og Tyrkland í því neðsta (tvöfaldur dómaraskandall!) og á meðan að það hafi máski ekki verið besta niðurstaðan þá varð það ekki alslæmt, og bústaði frægðina pínulítið, þá sérstaklega vegna dansmúvanna, bleika jakkans og hársins, sem dinglaði útum allt.

Einhverjir héldu því fram að Plastic Bertrand hefði ekki sungið neitt af lögunum sem gerðu hann frægan, þ.e. á tímabilinu ca 1976-1980, heldur hefði það allt verið pródúserinn hans. Það endaði með því að árið 2006 fór pródúserinn fyrir rétt til að sanna einmitt það, en tapaði málinu og endaði í gapastokki, enda ekki með neinar sannanir á meðan Plastic Bertrand (hetjan okkar) var með plötusamning, credit á útgáfunum, og múv to die for.

Hann gerði allskonar hluti á ferlinum: rústaði hótelherbergi í New York með öxi, var í söngleik sem var byggður á Abba lögum, varð spikfeitur, og síðarmeir international keppandi í Scrabble.

Lagið að neðan kom út 1978, og varð mini-hittari fyrir Plastic Bertrand. Flottur electrodiskóvellingur með miklu frönskum.

Plastic Bertrand - Tout Petit la Planète
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

PlasticBertrand.com
'Amour Amour' vídjóið á YouTube

Comments(8)


Bjarki:

Plastic Bertrand er magnaður!!!

Hef alltaf haldið mikið upp á lagið La Petit Tortillard. Helber snilld.

Feginn samt að ég er ekki Frakki. Grunar að þá myndi ég mögulega ekkert fíla karlinn. Held þetta sé gaur sem fari í taugarnar á mörgum Frökkum. Þeir finnist hann bara sumum vera hjákátlegur spjátrulingur. Og þó. Þetta hefði verið músík sem maður hefði alist upp við. Ég meina hver þarf Brunaliðið þegar maður hefur Plastic Bertrand hohoho...

Haha, jámm

Hann er reyndar Belgískur belgur, en þetta er alveg rétt sem þú segir: hann er einhverskonar bannyrði, því fólki finnst hann vera svo mikið sellout, sérstaklega útaf Eurovision (sem var pínu klúður), en líka því að hann er TV-presenter og er í allskonar dóteríi sem er ekkert voðalega mikið paunk, og hann þessi mikli orginal paunkari...

Bjarki:

Já hann er Belgískur belgur, hvernig læt ég.

Þetta lag er að koma inn sterkt eftir nokkrar hlustanir. Þetta er svoldið eins og The Rockets.

Já, ég á lagið líka í aðeins öðruvísi útgáfu með honum. Örlítið meiri discant. Bæti henni kannski við.

Árni:

Það er búið að liggja eintak af plötu eftir hann í Safnarabúðinni síðan ég man eftir mér.. eða kannski bara í hálft ár eða svo.

Man sérstaklega eftir plötunni vegna þess að maðurinn sem prýddi koverið var svo ótrúlega kvenlegur + með mikinn varalit og að vínyllinn er alveg skærbleikur. Músíkin var samt ekki alveg nógu góð til að kaupa fannst mér.

The original version of "Ca Plane Pour Moi" was recorded by Elton Motello.
It's called "Jet Boy Jet Girl".
French lyrics were added later.
You can read more about this here:
http://www.punk77.co.uk/groups/eltonmotello.htm

Wow, I had no idea about the origin of the song (I knew something about Plastic Bertrand perhaps not being the singer, but didn't know all these details).

Thanks for the info, Larz!


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)