Lagið Mr. Bojangles hefur verið koverað af óteljandi listamönnum (við erum að tala um a.m.k. sjöhundruð milljón manns...nei ókei, þeir eru kannski ekki óteljandi, en þeir eru mjög margir).
Lagið var samið af kántrýkúasmalanum Jerry Jeff Walker, sem er hvað frægastur fyrir einmitt þetta lag, kannski bara frægur fyrir þetta lag, ég veit það ekki. Hann einbeitir sér a.m.k. meira að rekstur plötuútgáfu en lagasmíði (en var vinur Townes Van Zandt í gamla daga, sem er frekar vel af sér vikið).
Textinn fjallar um þegar Hr. Walker hitti Hr. Bojangles, undarlegan drykkfelldan steppdansara, í fangelsi, og fílósófízkar samræður þeirra um lystisemdir og húsasund lífsins og tilverunnar. Sagan segir að Bojangles þessi hafi verið einn besti dansari í heimi, fyrr og síðar, og að sjálfsögðu spratt hann á gvuðdómlega fætur sína og heillaði Walker svo mikið með eitruðum hreyfingunum að sá hinn sami sá til tilknúinn að semja lag um atburðinn, það gott lag að aðrir listamenn gátu ekki annað en gert sína útgáfu af laginu.
Eitthvað svoleiðis.
Hvað um það, ég ætla smátt og smátt að pósta þeim útgáfum af laginu hans sem mér finnst bestar.
Hér kemur fyrst lagið í live útgáfu með honum sjálfum, svo eitt kover.

Jerry Jeff Walker - Mr. Bojangles (live)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Kover:

Harry Belafonte - Mr. Bojangles
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com