« Mr. Bojangles Cover Story #1 | Main | Mr. Bojangles Cover Story #2 »

Minningahornið #1

Afþví að ég á svo fína vini þá ætla ég að byrja með Minningahornið, þar sem ég pósta lagi sem minnir mig á einhvern ákveðinn vin minn, og segi kannski eitthvað um afhverju þetta lag (eða þessi lög) minna mig á viðkomandi.

Þú getur litið á þetta sem einskonar Knúsihorn Haraldar fyrir harðbrjósta þrettánþumla karlmenn.

Minningahornið #1: Jón Mýrdal
Ég er ekki búinn að tala við Jón Mýrdal í mörg ár (eða mér finnst það). Síðasta skiptið sem við hittumst var ótrúlega skemmtilegt. Ég var á leiðinni uppí sumarbústað með Óla Té og Nirði, og við ákváðum að hitta Mýrdal (og frúrnar) á Dússabar í Borgarnesi, þar sem við þömbuðum gos og bjóra og átum minipizzur og hittum --algjörlega óvart-- nokkra Borgnezka bloggara, sem þömbuðu enn meiri bjór, og einn sem vildi endilega sýna Betu það-sem-maður-sýnir-bara-kærustunni. Það var ótrúlega og merkilega gaman...þangað til rúta stútfull af þunnum kaffibörðum Kaffibörurum renndi uppað hurðinni og staðurinn fylltist af Reykvízkri hip&kúlmennsku. Þá fórum við.

Og afþví að þetta var svo íslenskt og alþýðulegt, þá er þetta eina lagið sem mér dettur í hug. Og það minnir mig líka á ammælið þar sem Mýrdal, Hemmi og Oddur voru berir að ofan að dansa við Íslenskan Eðal. Ó, minningar.

Mýrdal, ég elska þig.

Hemmi Gunn - Fallerý
musicnote.gif Listen

Comments(2)


Oddur:

ég hef aldrei dansað við aðra karlmenn ber að ofan!

Ekki bara ber að ofan, heldur með líkamann fullan af áfengi og fjöri.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)