
Ég fann það loksins loksins. Í fyrndinni heyrði ég lagið hljóma af regnblautri Hverfisgötunni innum stofugluggann minn á 2. hæð, svo á glerbrotshúðuðu plani fyrir utan skemmtistað, en aldrei fékk ég vídjóspóluna sem mér var lofað, vídjóspóluna sem geymdi lagið.
En ég fann það, þökk sé söfnunaráráttu elskulegra útlendinga sem eiga internet.
Þetta lag er tileinkað Katrínu og Ylfu (og Hansss, sem er búinn að heyra það sungið oftar en ég). Ef það væri ekki fyrir þær, þá hefði lagið aldrei endurómað á milli eyrnanna minna síðust fjögur árin.
Eiríkur Hauksson - Mitt á milli Moskvu og Washington (Live)
Listen
p.s. ég þarf hvorki að tala um Eirík Hauksson, legend Íslands, eða lagið sem átti að fara á Eurovision 1986, en tapaði fyrir Gleðibankanum. Þvílík synd!
Comments(3)
hvar fannstu það!!!!
takk takk takk elsku halli:)
Written 04.04.07 04:03
halli halli halli...
tú ert nú meiri snillingurinn:)
takk fyrir ad finna lagid, nú getur tad fengid ad hljóma um ókomna framtíd tøkk sé tér:D
sorrý tetta med spóluna....
Written 04.04.07 07:16
Hello, Iceland. Love the pic! =) We would like to get some Icelandic members to our discussion forum. Maybe you or someone you know would like to join us? Best regards, EHFC
Written 03.08.07 19:26