« Plastic Bertrand | Main | Salvör hin Síkadelízka »

Léttur miðdagsbræðingur

Í tilefni hækkandi sólar og lækkandi froststs er tilvalið að hlýða á tvo brakandi mjúka smelli fortíðarinnar. Báðir koma þeir frá 1983, árinu þegar Björn Borg setti skóna á hilluna, fæðingarári Eivarar Pálsdóttur, sama ári og Ghandi vann 8 óskara, og á svipuðum tíma og Guam kaus að gera Apatosaurus að opinberri risaeðlu sinni.

SSQ gáfu út mörg skemmtileg lög með söngkonuna Stacey dillandi sér í fararbroddi. Vegna vaxandi frægðar söngkonunnar hét bandið SSQ það ekki lengi, heldur breytti nafninu í, mikið rétt, Stacey Q. Þetta lag kom út á plötunni 'Play Back', nokkrum árum fyrir nafnabreytinguna.

SSQ - Walkman On
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com


Cheaps er grúppa troðfull af snillingum sem koma m.a. úr frábærum böndum einsog Cyber People og Hipnosis, og er koverlagið 'Moliendo Café' því miður eina útgáfa bandsins.

Cheaps - Moliendo Cafe
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Lagið sjálft er mjög frægt og hefur verið flutt af fjölmörgum tónlistamönnum og söngvurum. Skemmtileg finnst mér útgáfa hins síunga Julio Iglesias og Jeane Manson (YouTube).

Comments(2)


Hvað er malið með haus-grafikina? Af hverju er ekki mini-disc þarna!?

Arg. Rétt. Og upptökupenni.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)