
Kaada er snillingur. Heyrði fyrst í honum árið 2001 þegar lærifaðir Íslands, Árni Matt, spilaði plötuna "Thank You For Giving Me Your Valuable Time" fyrir mig. Mér fannst Kaada ótrúlega fínn, en þar sem eintakið mitt var prómóeintak vissi ég aldrei hvernig hann leit út, hvaðan hann kom, hvað hann vildi, og gleymdi alltaf að hlusta á nýrra efni með honum. En ég spilaði diskinn minn aftur og aftur og aftur og finnst hann enn æði.
Síðan 2001 hefur margt gerst. Kaada hefur breyst úr ósýnilegum hvítum pappírskalli í mjósleginn og skemmtilega slízí Norðmann sem er einu ári eldri en ég (svei!), og hefur auk þess gefið út baðkarsfylli af allskonar lögum, þ.m.t. sum með snillingnum Mike Patton.
Ég er aðeins of þreyttur tilað nenna að pikka allar plöturnar hans inn (þó það sem ég er að pikka inn núna er örugglega lítið styttra), þannig að á bestu vefsíðu í heimi, Discogs.com, er allur listinn: Kaada og músíkin.
Aftur: ég mæli endalaust með því að þú hangir á Discogs.com, sem er user-run databeis yfir diskógrafíu allra helstu raflistamanna alheimssögunnar, sem og fjölmargra annarra. (old skool hardcore, techno, acid, house, disco, italo-disco, emo-trance, goacore, new wave, indie rock, synthpop, blablabla, það er þarna). Og ef það er ekki þarna og þú átt eintak, þá geturu búið til account og skráð eintakið þitt inn. IceRave er þarna. Og Ajax - 'Rufige' líka. Og nýja gamla platan mín með Hey! Elastica.
Enníveis, hér koma tvö lög með Kaada af plötunni "Thank You For Giving Me Your Valuable Time" frá alheimsatburðageimárinu 2001.
Kaada - Care
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Kaada - Allwrong
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
♥ Kaada.no
p.s. tónlistin hans er blanda af...æji treystu mér, þetta er fínt!
Comments(6)
já, tónlistin hans er svona svolítið eins og blanda af svona fimmtudags-swungle og tjillaðasta lounge-gabber sem maður heyrir á börum bæjarins í dag. Einhversstaðar mitt á milli David Lynch og Loga Bergmanns Eiðssonar, með smá Roy Lichtenstein hent inní til skrauts.
Written 16.04.07 10:20
Aloha, http://www.mylrs.com/members/buy-zyban-sr-online.aspx get zyban sr online store fast delivery Nebraska
Written 26.08.10 06:59
Aloha, http://www.mylrs.com/members/buy-clomid-online.aspx clomid 50mg
Written 26.08.10 19:02
This is such a great resource that you are providing and you give it away for free. I love seeing websites that understand the value of providing a quality resource for free. It is the old what goes around comes around routine. Did you acquired lots of links and I see lots of trackbacks??
Written 27.08.10 21:46
The post is really the best on this laudable topic. I concur with your conclusions and will eagerly look forward to your future updates. Just saying thanks will not just be enough, for the exceptional lucidity in your writing. I will at once grab your rss feed to stay privy of any updates. De delightful work and much success in your business dealings!
Written 29.08.10 00:08
In related news, the Wayans brothers want to cast Tiger woods in their next movie but they can’t decide if the title should be White Chicks 11 or 12 ?
Written 31.08.10 19:09