...or else it gets the hose again.
Bjölli skrifaði fínt á Breiðholtið um 'Goodbye Horses' sem var í myndinni Silence of the Lambs.
Annað lag sem var ekki í myndinni en er frekar nokkurskonar tribute, er með annars óþekkta bandinu Greenskeepers, og heitir offjissallí 'Lotion', þó þú og ég og allir sáum vídjóið á internetinu fyrir nokkrum árum, og þá undir nafninu 'It Rubs The Lotion On Its Skin'. (sem er hluti úr setningu sem hinn lekkertlega varalitaði og annarramannahúðklæddi snarbrjálæðingur Buffalo Bill sagði svo fallega. Seinni hluti setningarinnar er 'or else it gets the hose again'. Smekkmaður, svo sannarlega.)
Ég vissi ekki rassagat um bandið (og mun ekki muna það), en internetið segir að þeir séu frá Chicago, að lagið hafi verið notað í einum Grey's Anatomy þætti, og að John Peel hafi fílað eitthvað annað lag með þeim. Þokkalegur árangur.
Persónulega finnst mér lagið miklu betra með vídjóinu, sem er mjög fínt:
Hér er svo lagið:
Greenskeepers - Lotion
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Þeir gefa lagið á vefsíðunni sinni, en það er stundum e-ð bilað. Mér finnst þeir sniðugir að gefa það, enda er það bæði snilld og eiginlega ástæða þess að þeir eru "frægir".
♥ Greenskeepers á internetinu
♥ Greenskeepers á mæspeis
p.s. skiptið um nafn, sjíís!
Comments(2)
Æði, þvílíkt æði!
Written 15.04.07 01:31
Ég man að ég hnussaði létt af hlátri þegar ég heyrði þetta fyrst í denn. Bara brandari. En þegar ég hlusta á þetta núna, er þetta fínasta nútíma-nýbylgja (Ný-nýbylgja?). Á undan sinni samtíð greinilega.
Written 16.04.07 05:27