« Skrímsli, vélar og rafmagnaðir bananar | Main | Loksins...loksins... »

Grát þú eigi, ástmögur minn sæll

Giorgio Moroder er hetja. Hann ætti að ganga um með skikkju og glitrandi belti hvert sem hann fer, vera með þemamúsík (samda af Lykla-Pétri), og fá allt ókeypis sem hann vill, þar sem hann vill, þegar hann vill.

Fyrir utan að gera allskonar diskó, italó, kvikmyndatónlist, pródúsa endalausa snilld sem gerðu annað fólk frægt (t.d. Berlin fyrir 'Take My Breath Away' úr Top Gun), þá er hann örugglega mannvinur, góður frændi, og frábær nágranni. Og með þykkan víbrandi hármökk og hnausþykkt yfirvaraskegg sem kitlar hörðustu glæpamenn.



Children of the Mission (Giorgio Moroder) - Tears
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Þetta lag er af 12" frá 1972. Children of the Mission var samstarfsverkefni Giorgio Moroder og Pete Bellotte, sem vann með Giorgio mörg ár af ferlinum (bæði samdi og co-pródúsaði).

Dj Shadow samplaði þetta lag fyrir 'Organ Donor'-ið sitt, og ég var búinn að gleyma því að þetta var Giorgio Moroder, elsku snillingurinn okkar, en ég man það núna, og mun aldrei gleyma.

Comments(2)


Bob:

Úúú, fínt! Er eitthvað sem Mör-óðurinn gerði ekki?

Honum tókst einhvernveginn að verða aldrei sellát, og alltaf GEÐVEIKISLEGA kúl, með uppbrettar ermar og vind í hárið.

Eða það held ég.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)