Eitt af því sem ég elska við að fara á tónleika hér erað stundum eru upphitunarböndin--sem þú hefur aldrei heyrt um--svo yndislega frábær. Þannig kynntist ég einmitt Akron/Family, Grizzly Bear, Just About To Burn, Regina Spektor, Lance Romance, Lucky Dragons, og endalausum öðrum frábærum böndum (þar af sumum uppáhalds í dag).
(( Þetta verður hrósfærsla ))
Þegar ég sá hina yyyyyndislegu og gríðarlega sætu El Perro Del Mar um daginn, sem var jafn frábær og ég bjóst við, með lögin í mjöööög flottri akústík útgáfu, voru Marissa Nadler og Chris Garneau að hita upp. Ég átti diska með Marissa Nadler fyrir tónleikana og var mjög spenntur að sjá hana læv, og það var jafn frábært og ég vonaði. Hún er með ótrúlega sérstaka rödd og tónlistin hennar er einhvernveginn tímalaus, einhverskonar blanda af psýkadelíu og dreamy fólki, samt nær því að vera fólk...en það er tilgangslaust að skilgreina tónlistina því það er einmitt það sem skiptir langminnstu máli. Mestu máli skiptir að hlusta, er það ekki elskulegur lagsmaður? (psst. pósta lagi með henni seinna)
Ég vissi hinsvegar ekkert um gaurinn sem spilaði fyrst, Chris Garneu. En sjís, hann var æði! Hann sat við píanó, stelpa á fiðlu, strákur á selló, strákur á trommur, og einn á melódiku og eitthvað annað vesen. Textarnir voru flottir, spileríið mjög flott, en hann söng frábærlega og lögin hans mjög skemmtileg.

Eftir tónleikana keypti ég diskinn hans Music For Tourists (kom út í janúar 2007). Ég reyni alltaf að kaupa diska með þeim artistum sem mér finnast skemmtilegir á tónleikunum sjálfum, því þá veit ég að grænu dollararnir mínir fara dýpra í vasann þeirra, í stað einhverrar plötubúðar eða vefsíðu. Marissa Nadler var í fíling (örlítið tipsy) þar sem hún stóð bakvið diska- og bolasöluborðið og spjallaði við mig. Hún fiktaði í hárinu sínu, reyndi að bera nafnið mitt fram tólf sinnum með andlitið aðeins of nálægt mínu, tísti smá úr hlátri, og glotti gríðarlega þegar hún ákvað að gefa mér bara (óumbeðið) nýja diskinn sinn. Svo blikkaði hún mig, og ég roðnaði og hálfstrunsaði burt í svimakasti.
Chris Garneau - Black and Blue
Listen / Buy: from Chris Garneau / from Amazon.com
♥ ChrisGarneau.com
♥ Chris Garneau vefverslunin
♥ Chris Garneau á Myspace
hægt að hlusta á fjögur önnur lög, sem ætti að vera alveg nóg fyrir þig
Comments(2)
Gaman að þessu. Gaman væri ef fleiri hlustuðu á Chris Garneau.
Tónlist Chris varð á vegi mínum nýlega og mér fannst væmna hommalega tilfinngapoppið hans alveg frábært.
Sjá hér:
http://www.rjominn.is/reviews/show/348
Written 17.04.07 07:54
Góð grein!
Er sammála þér með að fleiri mættu hlusta á hann. Hérna úti veit enginn hver hann er. Hann er reyndar ekki mikill partur af New York senunni og hefur sjaldan spilað hér, en það er að breytast og fleira fólk greinilega að taka við sér.
Það er bara svo gaman að rekast á eitthvað svona alveg óvart.
Written 17.04.07 11:29