
Dora Carofiglio er offisjal söngkona Italo Disco. Hún er Celine Dion / Mariah Carey / Whitney Houston / Maria Callas / Kiri Te Kanawa / Muazzes Ersoy hins eilífa stuðs.
Hún er lang þekktust undir nafninu Valerie Dore, gaf m.a. út singúlinn 'The Night', sem er stórkostlegur dramaslagari, en hefur einnig sungið í endalausum öðrum megahitturum.
Eitt uppáhalds lagið mitt með henni (undir nafninu Shirley Ross) er cover frá árinu 1984 af mjög frægu tilfinningalagi eftir mjaðmatryllinn Peter Cetera. Það ættu allir að muna eftir þessu lagi, sitjandi með litabók og volgt kakó við gluggann í sumarbústaðnum, horfandi á rigninguna og hlustandi á mömmu og pabba vanga á brakandi stofugólfinu.
Næstum því fullkomið.
Shirley Ross - If You Leave Me Now
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com