« The Units | Main | Cubamares on Sr. »

Diskó klón


(verð víst að taka það fram að þetta er ljósmynd eftir Frida Klingberg, með fótósjoppi eftir mig)

Sally Shapiro er artistanafn feiminnar og stundum-krúttlegrar sænskrar disco/italo disco söngkonu sem varð leyndó-senseisjón einhverntímann í fyrra. Músíkin hennar og pródúsersins er skemmtilega humble, ef það meikar eitthvað sense, og algjörlega laus við Brooklyn-bóner og glerlausar gleraugnaumgjörðir og meik útum allt og neonrusl. Snýst bara um músíkina, finnst mér, og það er það sem mér finnst svo fínt.

Af plötunni "Disco Romance" frá 2006:

Sally Shapiro - I Know
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Sally Shapiro á internetinu
Sally Shapiro á myspace


Cristina (Cristina Monet-Palaci) er merkileg diskóhetja og megakrútt, en samt aðeins meira outgoing krútt en sú að ofan. Hún er með pínu skrýtna rödd, og það er einsog hún hafi alltaf verið að gera smá klever grín að diskói og poppi. Cristina gaf út fyrstu plötuna 1978, og eftir að aðallagið 'Disco Clone' varð smá hittari komu út nokkur lög og svo plata pródúseruð af August Darnell, miklu betur þekktum sem Kid Creole, sem varð í kjölfarið hús-pródúser leibelsins. Einhverntímann seinna varð hún ein af fjölmörgum og margútskiptum kókoshnetunum í Kid Creole & The Coconuts. Hún tilheyrði No Wave tónlistarstefnunni, sem er frekar loðið hugtak að mínu mati, en það passar kannski við hana, þar sem að hún er smá diskó, smá paunk, smá popp, smá sjóvbiz. Og auðvitað er hún frábær.

Fyrst er fyrsta lagið hennar. Smá Dallas-fílingur, ískrandi fiðlur og mikið fjölskyldudrama. Sagan segir að karlmaðurinn sem talar svo lokkandi í laginu sé enginn annar en Kevin Kline...maður finnur hnéskeljarnar linast upp...

Cristina - Disco Clone
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Seinna lagið er pródúsað af Kid Creole, og fittar alveg inní músíkina sem kom seinna meir frá honum og hans hyski. Textinn er frábær.

Cristina - Don't Be Greedy
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Skrýtin snilld.

Á Amazon.com er hægt að kaupa best of plötuna Doll In The Box, sem kom út 2004 og inniheldur bæði lögin að ofan, auk koverlagsins 'Drive My Car'.

Comments(4)


Bob:

Er þetta ekki sama Christina og gerði 'What's a Girl to do'? Svaka gúmmolaði, seinna lagið.

Jú! Einmitt sama Cristina. Hún er sæt og skrýtin. Og með langan háls.

"algjörlega laus við Brooklyn-bóner og glerlausar gleraugnaumgjörðir og meik útum allt og neonrusl"

hehe:)

Pablo:

hi halli

do you have that cristina record? does it say who did the artwork on it? it is very jean paul goude looking but isnt referenced at all in his book or website.
was it a copy cat?


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)