« Diskó klón | Main | Sumarpartý hjá Júlla Brúna! »

Cubamares on Sr.

Einusinni var Cuba Gooding bara Cuba Gooding. Svo fann hann ástina (eða ástin fann hann) og hann eignaðist barn sem fékk nafnið Jr. Eftir það var okkar Cuba Gooding þekktur sem Cuba Gooding Sr., en Jr.inn varð leikari sem við öll elskum að hata að elska og hata.

Sá hinn eldri söng einusinni aðal fyrir Motown-bandið Main Ingredient, og þeir voru pínu vinsælir. Þeir spiluðu, sungu og gáfu út lag sem varð smá-en ekkert voðalega-vinsælt, en varð aðeins vinsælla þegar Cuba Gooding (án Sr.sins) gaf það út með sjálfum sér í aðeins meiri diskódanssmoove-versjón.

Cuba Gooding - Happiness Is Just Around The Bend
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Einusinni var George Evelyn bara George Evelyn. Svo hitti hann mann (engin ást), og varð að Dj Ease og helmingnum af Nightmares on Wax. Þeir fíluðu breik, bleeps, LFO, Unique 3 og fleiri, og fóru að gera músík. Árið 1990 gáfu þeir út tólftommur og ári seinna breiðskífuna 'Word of Science'. Sú plata er allt öðruvísi en tsjillofurátið sem fylgdi '95 og '00. Þó það sé ágætlega gott--og þá sérstaklega allar útgáfurnar af Nights Interlude (og lög með og rímix fyrir De La Soul)--þá þurfti ég smá tíma tilað venjast því, á meðan að ég fékk lagið að neðan strax á heilann. Það lag er byggt á sama lagi og Cuba Gooding Sr. gerði pínu vinsælt, og það gerði Nightmares on Wax vinsæla.

Nightmares on Wax - Aftermath
musicnote.gif Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com

Ég myndi hlusta fyrst á Cuba Gooding og svo á Nightmares on Wax. Og ef þú ert í fíling geturu líka fundið útgáfuna með Main Ingredient, og hálfgerða rímixið með Altern8, sem var t.d á safnplötunni 'Only For The Headstrong vol. 1'. (af einhverjum ástæðum minnir sú útgáfa mig alltaf, og ég meina alltaf, á minipizzurnar sem var hægt að kaupa í matsalnum niðri í Akraborginni...og hvernig getur það lag þá ekki verið pínu uppáhalds líka?!)


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)