« Ekki fara elsku vin, með einn stærsta hlutann úr mér... | Main | Jei! »

Auglýsing frá 1975:

366_joi_g_liti.jpg

"Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í áætlunarferð samkvæmt sumaráætlun til 12 staða í Evrópu og Bandaríkjunum. Flugfélag Íslands / Loftleiðir - Félög með þjálfað starfslið í þjónustu við þig."

Þetta stendur skrifað aftan á sjötommuna sem Óðmaðurinn góðkunni, Jóhann G. Jóhannsson, var fenginn til að semja í auglýsingaskyni fyrir íslensku flugfélögin sem síðar urðu Flugleiðir og nú síðast Icelandair.

Ég vildi að ég ætti skanner til að geta birt myndina sem fylgir á eftir textanum: Svarthvít mynd af leðurhanskaklæddri vinstri hönd sem rígheldur í skjalatösku þar sem áfastir eru 3 miðar. Á einum stendur DESTINATION COPENHAGEN, á þeim næsta DESTINATION STOCKHOLM og sá síðasti er eins og yfirlit yfir samgöngunet flugfélaganna. Reykjavík í miðjunni (nafli alheimsins) og svo línur í áttinna að öðrum 12 stöðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Athygli vekur að allt eru borgir eða bæir á borð við Kulusuk, New York og Osló. Nema Færeyjar. Færeyjar eru Færeyjar.

Jóhann G. Jóhannsson - Icelandic Airlines
musicnote.gif Listen

Comments(2)


Bob:

Svona syngjandi sveifla má alveg flytja mig til Bogotá, Bora Bora nú eða Kulusuk for that matter.

Haha, word!


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)