hjálp
***uppfært með draum-upplýsingum***
Árin 1989 til 1992, þegar ég var í 7. til 10. bekk í Foldaskóla, var útvarpsþáttur á Stjörnunni sem spilaði glænýja danstónlist, og mig minnir að hafi heitið XL.
Mig minnir líka að umsjónarmaður þáttarins hafi verið Pétur Árnason --sá hinn sami og gerði tónlist undir nafninu Soul Control, og átti tvö lög á IceRave-- en það er alveg líklegt að ég sé að ringla allskonar upplýsingum saman.
Hét hann ekki Ómar Friðleifsson?
Svo er ég (næstum) handviss að hann hafi verið með kvikmyndaþátt í útvarpinu, jafnvel Bylgjunni, sem hét Hvíta tjaldið.
Ég líka mjög viss um hann hafi svo farið að vinna fyrir SAMbíóin, og verið sá sem talaði oft inná auglýsingar.
Ég veit að það er gríðarlega ólíklegt að margir muni eftir þessum þætti. Njörður vinur minn man eftir honum, en ég veit ekki um neinn annan sem man.
Ástæðan fyrir því að ég spyr, er að ég hef aldrei hætt að hugsa um þennan þátt. Í honum heyrði ég allskonar lög sem ég hlusta ennþá á, og eru algjör klassík fyrir mig. Ég man eftir að vera inná skrifstofu í Fjörgyn (félagsmiðstöðinni), standandi uppá stól við útvarpstækið, sveittur að taka upp þáttinn. Gat nefnilega ekki misst af opnu húsi, þar sem ég spilaði billjard, bruddi piparbrjóstsykra, og tók heimatilbúna snúninga í borðtennis, og sameinaði því uppáhöldin mín.
Ég á nokkrar þvældar og margspilaðar kassettur í kassa í geymslunni hjá mömmu, en þegar ég fór í gegnum þær síðast --sem er fyrir mjöööög mörgum árum-- fann ég ekkert sem hjálpaði.
Aftur:
- útvarpsþáttur á Stjörnunni, 1990-1992
- hét XL (eða eitthvað í líkingu við það)
- spilaði glænýja dansmúsík
- umsjónarmaðurinn hét Pétur Árnason
- Ómar Friðleifsson
- var seinna með Hvíta Tjaldið, útvarpsþátt um kvikmyndir
- talaði inná auglýsingar fyrir SAMbíóin
Eitthvað þarna er rétt, eitthvað er vitlaust, en það hlýtur einhver að muna eftir þessum þætti.

Hér er eitt af lögunum sem ég man eftir að hafa heyrt í þættinum, og er búið að glymja í hausnum mínum svooo leeeengiiiiii. Ég heyrði það útum bílglugga fyrir einhverjum árum og fékk *svitn*, og heyrði það svo í skóbúð hér í NY og stífnaði upp, en mundi aldrei hvað gellan hét. Svo dreymdi mig fyrir einhverjum mánuðum (ég sver það!) og fann það svo og KEYPTI á emusic.com. Gvuð blessi drauma og internetið.
Corina - Temptation (1991)
Listen / Buy: GEMM / eBay / Amazon.com
Ef þú ert gamall og gráhærður einsog ég, og manst eftir að hafa heyrt þetta lag þegar í útvarpinu þegar þú varst meiri úllíngur, þá manstu örugglega eftir þættinum. (finnst líka stórkostlegt að lagið er allsstaðar flokkað undir freestyle)