Fyrst að Oddur og Þórður sóttu báðir Quadrophonia þá ætla ég að setja meiri músík hingað.
Hér er dót frá 1989 sem ég fílaði ófermdur í Foldaskóla, á meðan ég borðaði snúð og drakk volga kókómjólk.

Numero Uno er algjört snilldarlag! Ég man að ég átti mjög erfitt með að velja á milli þess og Pump Up The Volume með M.A.R.R.S., fannst þau bæði æði. Þetta lag er klassískt Italo House frá 1989, mikið af píanói og stuði. Í Starlight voru þrír ítalir (einn frægur dj, einn tölvu- og hljómborðsgaur, og einn klarinettleikari) sem saman kölluðu sig Groove Groove Melody. Frá þeim kom hellingur af allskonar snilld, þ.á.m. Black Box ('Ride on Time', 'Everybody Everybody' o.fl.), Lonnie Gordon ('Happenin' All Over The World') og Mixmaster (Grand Piano). Guð blessi þá.
Starlight - Numero Uno (Club Mix)

Betty Boo var ótrúlega hress og flippuð pía. Þetta lag er kannski hvað mest 'soft' af hittunum hennar - hin voru 'Doin' The Do', og 'Where Are You Baby?' og eru meira Deee-Lite-skrýtin og hálf flippuð. Þau eru samt öll æði. Betty er hálf-bresk og hálf-malasísk og ég veit ekkert hvað ég á að segja meira um það. Hún gaf út tvær stórar plötur, "Boomania" og "Grrr... it`s Betty Boo", og þar sem hún var orðin 29 ára árið 1989 þegar hún meikaði það (svona næstum því) þá gefur það okkur hinum smá auka sjens. Betty hvarf eiginlega eftir allt flippið, gaf út Best Of plötu árið 2001, samdi bestselling singúl fyrir breska ógeðisbandið Hear'Say, og er að vinna að nýju efni í dag sem Alison Clarkson. Fáránlegt nafn, tvo "son" í röð, og ekkert skrýtið að hún skyldi hafa valið Betty Boo. En hún er orðin 35 og dáldið húsmæðraleg. Ég vona að nýja dótið sé jafn skemmtilegt.
Betty Boo ft. The Beatmasters - I Can't Dance (To The Music You're Playing)

Hringur og ég dönsuðum mikið við þetta lag sumarið 1992 þegar við héngum heima hjá honum og ég splæsti snúðum og köldum kókómjólkum (framþróun). Sem fyrr eru það þrír hressir Ítalir (hr. F, hr. P og hr. I) sem bjuggu til F.P.I. Project. Eftir að meika það með þessu lagi stofnuðu þeir labelið Paradise Project Records, og síðar meir bandið TC, sem gaf t.d. út lagið "Funky Guitar" árið 1992, sem var vinsælt á FM 957, Bylgjunni og Partyzone. Það eru til nokkrar útgáfur af þessu lagi, en mér finnst þessi best (búið að klippa út leiðinlega intróið með gervibassanum og stuðið byrjar strax).
F.P.I. Project - Rich In Paradise/Going Back To My Roots
Comments(8)
Hey, þú, ef þú dánlódar og finnst fínt að fá svona músík þá máttu (skaltu) a.m.k. kommenta og segja "oj leiðinlegt lag" eða "nuj vissi ekki að Betty Boo væri svona fáránlega gömul og með tvö "son" í nafninu sínu" eða "jösss þetta lag, ég elskaði það þegar ég fermdist" eða "vá, ég fékk teina sama dag og þetta lag kom út". Eða eitthvað.
Written 02.03.05 20:57
Á þau öll ;-) og þau voru drulluflott í den og eru en flott. Ó hvað snúðarnir voru góðir, gefins snúðar eru alltaf betri ;-) þó svo mig minnir að þú drollaðir að ná í bakkelsið stundum svo maður fékk nú ekkert alltaf kalda kókómjólk :-)
Written 03.03.05 00:56
ég sótti numero uno og það er mjög vont.. svo var það líka vitlaust id taggað þannig ég nennti ekki að sækja hin;)
Written 03.03.05 09:23
Já, mjög vont lag. Verra en Missy Elliott? Held ekki. Btw ég á ýkt flotta Adidas Starlight skó, og jogginggalla líka.
Written 03.03.05 17:05
Ég eeeelskaði 808 State...hvar finnur maður það?
Man samt eftir Prince þegar hann gerði músíkina við Batman árið 1989, átti plötuna...eða fyrirgefðu..kassettuna...það var hægt að dansa við það...svo byrjaði boltinn að rúlla að það var no turning back!
Luv
Magz
Written 03.03.05 18:50
Ég á 808 State. Skal setja lag með þeim einhverntímann.
Ég átti líka Batman plötuna, vann hana í Skonrokk með Stebba Hilmars. Svaraði spurningu um Fergal Sharkey og gleymi aldrei mómentinu þegar ég labbaði upp stigann heima hjá mér og heyrði Stebba lesa nafnið mitt...
Written 03.03.05 19:58
OMG....
En ertu ekki sammála mér að það er snilldarplata?
Magz
Written 05.03.05 17:05
Júhúts!!!
Vicki Waiting er eitt uppáhaldslagið mitt í öllum heiminum. Og Prince.
Written 05.03.05 18:34