« Venetian Summer | Main | Læðupokandi ljúfmenni »

Ellismellir

Quadrophonia í fíling

Quadrophonia var old skool hardcore hljómsveit og algjörlega uppáhalds mjög lengi, og ristir enn djúpt í hjarta mitt. Þetta er líklegasta frægasta lagið með þeim og aaaalgjör klassík. Ég ákvað að hafa rímixið því mér finnst byrjunin flottari. Þessir sömu gaurar gerðu líka lagið óþolandi 'Poing' með Rotterdam Termination Source, og svo snilldarlagið 'Anastasia' með T99, sem er líka algjör old skool klassík.

Quadrophonia - Quadrophonia (remix)
Listen / Buy "Cozmic Jam" from Amazon

Autograph - Turn Up The Radio

Einusinni átti ég Nesco útvarp með hátölurum sem hægt var að taka af (með mjööög löngum snúrum). Ég lá oft uppí rúmi með hátalara við sitthvort eyrað og hlustaði á allskonar snilld í víðómi. Ég mundi alltaf eftir hvað ég elskaði þetta lag, en vissi aldrei með hverjum það var. Svo fann ég það loksins í hitteðfyrra og er oft búinn að vaska upp með það í botni. Ó elsku lag! Autograph var týpískt one-hit wonder 80s L.A. hárband, og þetta var það eina góða, restin var prump.

Autograph - Turn Up The Radio
Listen / Buy "Sign in Please" from Amazon

Animotion í fíling

Ég þoli ekki Jeannie Becker, ég myndi hata hana ef hún hefði ekki troðið þessu lagi djúpt inní hausinn minn sem þemalagið fyrir Fashion Television. Svo gott, svo hart, svo mjúkt, svo frábært. Synthapopp og eitt af fáum lögum sem hljómsveitin gerði vinsælt (annað lag var úr myndinni My Stepmother Was An Alien, það ætti að segja margt). Þau minna mig dáldið á GusGus, með leikkonu sem söngvara og allt. Held ég muni hlusta á þetta lag þegar ég verð 86 ára.

Animotion - Obsession
Listen / Buy "Obsession" from Amazon

Comments(3)


Hér sit ég, alveg kominn í fílinginn, tilbúinn í kvatrófóníuna, kominn með heyrnatólin á eyrun....

...og hvað?

Lagaðu linkinn maður. Þetta voru vonbrigði dagsins.

Virkar hjá mér...þú veist að þú verður að vera með internet?

any key?