
Monster & Maskiner eru tveir hressir Svíar sem gera skemmtilega bleepy elektróník. Ég veit að það er ömurlegt að vera alltaf að nefna einhver önnur bönd til að lýsa músík, en ef þú fílar Pluxus eða Slågsmålsklubben, þá fílaru þetta band. Pluxus gerðu eitt skemmtilegasta lag alheimsins (og Krilli spilaði það fyrir mig), og myndbandið við það var líka voða fínt.
Þetta lag er það sem mér finnst skemmtilegast á plötunni þeirra Never Die! frá 2005 (og er fyrsta lagið). Upp og niður, til hliðar, blibbs og blúbbs, og skemmtilegt.
Monster & Maskiner - Kill Him!
Listen

Talandi um eiturhressa Svía, hér er lag með ofurhressa stuðbandinu Electric Banana Band, sem var stofnað um 1980 eftir marga performans í sænskum barnaþætti. Frá 1977 gáfu þeir út endalausar plötur um banana, Trazan (sem er væntanlega fjarskyldur frændi Tarzans?), og allskyns frumskógarstuð. Lagið að neðan kom út árið 1998, og er mjög lýsandi fyrir lífsgleðina og léttlyndið.
(pssst. sjáðu bara hvað þeir eru í alvöru hressir!)
Já, ég veit, þú ert búinn að fatta að lagið er um bananastuð, þannig að poppaðu upp einn gulan, hoppaðu uppí ljósakrónu, og fílaðu fílinginn.
"Nej! Det er en SUUUPER BANAAAAN!"
Electric Banana Band - Banankontakt
Listen / Buy
Comments(1)
The post is really the best on this laudable topic. I concur with your conclusions and will eagerly look forward to your future updates. Just saying thanks will not just be enough, for the exceptional lucidity in your writing. I will at once grab your rss feed to stay privy of any updates. De delightful work and much success in your business dealings!
Written 01.10.10 03:55