« Hinar fljúgandi eðlur! | Main | Christmas Remixed 1 og 2! »

Rokk og ról fyrir börnin

radio.gif

Það gerist stundum þegar ég er að leita að nýrri tónlist og finn ekkert nýtt að ég eigi það til að hanga á Amazon og leita í salsa, kristilega tónlist, ljóðadiska, lúðrasveitatónlist og margt fleira. Ég rekst stundum á sniðugt dót (en ég vil ítreka að það gerist sjaldnar en oftar).

Þegar ég var að leita í miscellaneous hlutanum á síðunni rakst ég á diska seríu sem heitir Rockabye Baby! Þetta er sería sem tekur lög eftir fræg bönd eins og Radiohead, Coldplay, Pink Floyd, The Cure (og það er jafnvel diskur með Bjarkarlögum á leiðinni) og gerir úr þeim lúllaviðar (lullaby) útgáfur.

Þetta er í einu orði sagt FRÁBÆRT. Ég mæli með að þið kíkið á heimasíðuna þeirra, Baby Rock Records, og sjáið hvað er og mun koma.

Hér fáið þið tóndæmi:

Rockabye baby! - No Surprises

Talandi um skemmtilega tónlist. Suffocation var að gefa út sína sjöundu plötu. Ég iðaði allur í gamla skrifborðsstólnum sem frænka mín fékk í fermingargjöf (hún var svo góð að skilja hann eftir þegar hún flutti út) þegar ég var að byrja að hlusta á hana.

Þetta er góð plata. Ég hef alltaf smá veikan blett fyrir dauðarokki. Mér finnst ekkert skemmtilegra en að vera keyra í vinnuna kl:08:50 á morgnanna blastandi dauðarokki.

Ekki vera gæjinn sem sofnað með allt niðrum sig. Tjekkaðu á strákunum.

Suffocation - Translucent Patterns Of Delirium

Comments(2)


mögnuð barnalög, spilaði "no surprises" og fleiri fyrir radiohead-djönkíinn sem ég bý með og lögin slógu frekar í geng heldur en hitt, jafnvel þó að víbrafónn og glockenspiel séu ekki á top-27 listanum yfir uppáhaldshljóðfæri fólks svona almennt.
kv, steinunn sem vann í plötubúð og "kann" þessvegna "á" tónlist. (sá þig, njörður, í brúðkaupi í ágúst og þekkti þig af myndum ... etv blogg seleb eins og halli, verðandi, eða orðinn núþegar?)

ég er greinilega gæji sem sofna með allt niðrum mig, hef ekkert athugað þetta nýja snilldarblogg ykkar félaga...er að elska 'etta


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)