« Læðupokandi ljúfmenni | Main | Eyrnamergjað »

Ó Supergrass

Hey, veistu hvaða hljómsveit mér finnst skemmtileg?
Supergrass, that's who!

Fannst þeir bjánalegir fyrst, kannski afþví að þeir voru fulltrúar ungu og hressu kynslóðarinnar sem gekk í Levi's 501 brókum og áttu leðurjakka og fín sólgleraugu. Líkaminn minn þverneitar nefnilega að passa í 501, leðurjakkann á ég aungvan, og þar sem sólgleraugu eru svo óttalega glóbal þá teljast þau ekki með, en blabla, allt þetta lét mig fá minnimáttarkennd.

En svo alltíeinu vaknaði ég og fannst þeir frábærir. Sniðugir, kúl, með skemmtilög og skemmtitexta, meiraðsegja það gamla. Glæsileg saga, sem sýnir bara hversu mikið maður breytist þegar maður þroskast og zzzzzzz...

Ég sá þá spila á síðasta ári og brosti einsog mongóll allan tímann. Þeir svissuðu hljóðfærum og spiluðu akústízkt og rafmagnað eftir hentisemi og mér fannst gaman. Ég ætlaði svo að sjá þá núna í haust, en komst ekki vegna blessaðz skólans míns. Mér þykir nú vænt um hann líka, þrátt fyrir allan skaðann sem hann veldur mér í áhugamálalífinu.

Hér er lag af nýju plötunni þeirra, Road to Rouen.
Lagið heitir Coffee in the Pot og er skemmtilegt hressilag. Hvorki týpískt fyrir Supergrass né plötuna og þessvegna vil ég setja það hingað. Ég er búinn að spila það mjög oft og dansa einhverskonar heimabruggaðan polkaskoppidans sem skemmtir mér sjálfum mjög mikið. Takk Supergrass!

Supergrass - Coffee in the Pot
Listen / Buy "Road to Rouen" from Amazon

Svo kaupið þið plötuna strax á morgun, ókei?

- Supergrass.com
- Road to Rouen mínísíða


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)