« Elli & Jacno | Main | Hinn eilífi fimmtudagur »

Nýtt

Varað uppfæra linka í helling af gömlum færslum, og endurblogga þeim þannig að þær sjáist í snilldarforritinu Peel (eftir snillinginn Hjalta Jakobsson). Kannski koma því einhverjar gamlar færslur framar (kannski fremst?, úúú).

Fyrir þá sem vita ekki hvað Peel forritið er og gerir, þá er það ótrúlega sniðugur og einfaldur mp3-lesari og tónlistarspilari. Þú einfaldlega bætir mp3-bloggum í addressulistann í forritinu, og þá sér það algjörlega um að sýna þér alltaf þegar viðkomandi blogg uppfæra með nýrri tónlist. Þú getur svo annaðhvort hlustað á lögin í Peel (sem virkar alveg einsog iTunes) eða downloadað þeim með því að smella á einn takka.

Peel er bara til fyrir Mac einsog er, og þú færð það hér: www.GetPeel.com

Sniðugt!

Comments(2)


ég elska peel-ið, ég hleyp heim úr vinnunni til að sjá hvort einhver er búinn að setja eitthvað skemmtilegt

Sparkaðu í Njörð og segðu honum að fara að standa sig!


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)