« Grikkinn sem tekur í gikkinn | Main | Sniðugt - 1989 »

Tvíburabækur

Hljómsveitin The Twins var stofnuð árið 1980 af tveimur þýskum vinum sem eru ekkert skyldir, en vildu nafn sem lýsti geysilega hagkvæmu og tilfinningaríku (og -þrungnu) samstarfinu. Þeir kumpánar voru búnir að spila með öðrum hljómsveitum, og í The Twins gerðu þeir allt: sömdu lögin, spiluðu og sungu, tóku upp, mixuðu (og það allt nokkuð hressilega). Þeir voru upphaflega innblásnir af Gary Numan, OMD, Depeche Mode og þessháttar early ný-rómantíkusum, en tónlistin þeirra þróaðist þó útí hreint synthapopp (eða "80s tónlist") og var vinsæl í heimalandinu þeirra, Þýskalandi, og einnig Ítalíu og Sovetríkjunum, þannig að þetta eru aungvir aukvisar þó fáir kannist við þá. Ég hélt lengi að The Twins væri early Thompson Twins dóterí, enda söngröddin stundum svipuð, en það gladdi mig að sjá þessa eiturhressu gaura sem standa á bakvið þetta alltsaman. Svolítið einsog Modern Talking, Wham, Simon & Garfunkel, og Halli & Laddi: einn dökkhærður með slétt hár og einn ljós/skolhærður með fluff. Eini munurinn er minna hár, minna gloss og aðeins minni geðveila. Og ókei, næstum engin alvöru frægð.

Þeir bjuggu til læv-band og túruðu eitthvað um heiminn til að sanna fyrir öllum (og sjálfum sér) að þeir væru ekkert eins-slagara-undur, en tóku því svo rólega og fóru að pródúsa aðra minni listamenn. Hvernig það gekk veit ég ekkert um, en er örugglega skrifað hetjulega á vefsíðuna þeirra. Þar kemur líka fram að þeir séu sprelllifandi og túrandi ennþá í dag, og að vinna að nýrri plötu, en við vitum alveg hvað það þýðir. Ég ákvað að setja rímixið af laginu afþví að það er aðeins meira stuð.

musicnote.gif The Twins - Love In The Dark (remix)
af 12" (1985)

Linkar:
- www.the-twins.de
- Plötuumslögin þeirra

Mobius Band er þriggja drengja elektrónískt-pop-rokkband (þúveist: gítarar, hljómborð, samplaðar trommur, venjulegar trommur, allt í bland) frá Massachusetts sem býr núna í Brooklyn, líklega til að koma sér betur á kortið. Ég heyrði fyrst um þá þegar ég hlustaði á rímix af laginu þeirra "The Loving Sounds of Static" á safnplötunni 'Idol Tryouts Two' frá útgáfunni Ghostly International. Lagið er tekið af samnefndri plötu Mobius Band sem kom út í fyrra (2005) á sömu útgáfu, sem er annars betur þekkt fyrir annars ágæta elektróník (þ.á.m. Solvent, Dykehouse, Dabrye og Matthew Dear).

Þegar ég hlustaði á rímixið vissi ég ekki að lagið væri upprunalega rokklag (eða hvað sem þetta er, stundum einsog Postal Service, stundum einsog Franz Ferdinand) og þó það sé alltílagi lag þá held ég að ég muni ekki spila það oft þegar ég verð gamall og heyrnarlaus, ég meðan að ég muni örugglega blasta rímixinu fyrir allt hitt gamla fólkið á elliheimilinu. Platan þeirra er svo ekkert voðalega spes og ekki alveg minn bolli af tei. Textarnir dáldið mikið um að vera ungur og standa frammi fyrir lífinu eitthvað. Bleh. Kannski fínt á tónleikum þegar þú heyrir bara "murmurmur"? Hér eru báðar útgáfur lagsins, svo þú getir borið þau saman.

musicnote.gif Mobius Band - The Loving Sounds of Static
af 'The Loving Sounds of Static' (2005)

musicnote.gif Mobius Band - The Loving Sounds of Static (Junior Boys remix)
af safnplötunni 'Idol Tryouts Two' (2006)

Linkar:
- Mobius Band
- Ghostly International

Hljómsveitina The Books er dáldið erfitt að finna á netinu þarsem að nafnið er jú heitið á innbundnum papýrus fullum af texta og myndum, einmitt einsog þeim sem fylla hillur og þyngja skólatöskur og teygja plastpoka. Já, ég er að tala um bækur..

Hljómsveitin var stofnuð árið 2000 og hafa þeir ótrúlega sniðugu félagar gefið út þrjár frábærar plötur. Lögin að neðan eru af fyrstu og þriðju plötunni þeirra, 'Thought for Food' og 'Lost and Safe', respectively. Flest sem kemur frá þeim er bæði skemmtilegt, sniðugt, clever og fallegt, og þeir eru ein uppáhalds hljómsveitin mín. Þeir gera folk-tónlist með smá rafmagni, allskonar hljóðbútum héðan og þaðan, glerflöskutrommutöktum, gítarbarningum, hummi, strengjum og plink-plonki, en umfram allt gera þeir þetta mjög vel og áheyranlegt og skemmtilegt og áhugavert. Alls ekki fyrir alla, en samt nokkuð marga.

Svipað og hinir alls óskyldu The Twins þá gera þeir félagar í The Books allt sjálfir, og þá meina ég allt, því plöturnar eru pressaðar í aftursætinu á heimasmíðaða bílnum þeirra. Ókei, það er lygi, en þeir gera allt tónlistartengt sjálfir og það sem þú heyrir á plötunni kom þannig úr tölvunni þeirra án þess að stoppa við í stúdíói með Ultra Maximizer.

Þrátt fyrir að fá nær alltaf frábæra dóma og vera vel liðnir, vel virtir og vel fílaðir af, well, fólki, þá selja þeir ekki mikið af plötum og eru því strögglandi artistar, alveg einsog flestir íslenskir popparar, rokkarar, leikarar, trúðar og fatahönnuðir. Á vefsíðunni biðja þeir fólk vinsamlega að stela ekki músíkinni þeirra, og því vona ég að eftir að þú gerir það sem þeir vilja helst ekki að þú gerir, þá farir þú annaðhvort á amazon.com eða beint útí næstu plötubúð og kaupir eintak. Kannski ég geri það sama sjálfur, ehemm.

musicnote.gif The Books - All Bad Ends All
af 'Thought for Food' (2002)

musicnote.gif The Books - Be Good To Them Always
af 'Lost and Safe' (2005)

Linkar:
- The Books

Comments(3)


Vá Halli, ég held að þú hafir náð að verða mesti MP3 bloggari heimsins í einni færslu, fair play to you!

Kristleifur:

Þakka þér fyrir Steinn.

Og þakka þér fyrir Kristleifur. Var ekki búinn að sjá yfirvaraskeggshúðflúrin. Finnst þau...mögnuð...? Permanent Garbage Pail Kids límmiði?


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)