« Float like a butterfly, sting like a Jorge Ben | Main | Hinn eilífi fimmtudagur **uppfærður** »

Lævísir leikir

Óh, elsku Yello!

Hinn ríki og hinn minna ríki, Boris Blank og Dieter Meier, gerðu svo margt fallegt, en þetta er uppáhalds. Myndbandið var líka svo fínt!

Þetta lag minnir mig alltaf á helling af öðrum lögum, t.d. 'One Night in Bangkok' með Murray Head, kaffibollamyndbandið með Paul Young þar sem hann sat umvafinn teppi (ég man samt ekkert hvaða lag það var), 'Turn Up The Radio' með Autograph, og svo auðvitað 'Nightshift' með Commodores (allir að stara í spegilinn og smella fingrum, mmmm!).

Yello - Vicious Games
musicnote.gif Listen / Buy

Ég er dáldið fúll útí Formúluþættina á Rúv fyrir að gjörnýta Yello-snilldina...eða í rauninni alla rallý- og íþróttatengda sjónvarpsþætti heimsins, sem virðast nota sama 4-laga diskinn fyrir alla músík ('Race' með Yello, Chumbawamba, eitthvað með Apollo 440 og svo Propellerheads. Bjakk!).


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)