« Ellismellir | Main | Ó Supergrass »

Læðupokandi ljúfmenni

Ég veit ekki alveg hvort ég hafi reiknað með því að maðurinn sem ber hið faglega og exótíska nafn Bertrand Burgalat væri svona næs. Hann byrjaði ferilinn á því að vinna með Air, Soul II Soul, Pizzicato Five og fleirum, og fyrsta platan sem hann gaf út (The Genius of Bertrand Burgalat) innihélt efni sem hann hafði pródúsað með öðrum böndum. Seinna gaf hann svo út fyrstu plötuna með eigin efni (The SSSound of MMMusic) og eftir það ekkert stöðvað þennan hægláta átjánhjólatrukk á hraðferð inní algleymið.

Stíllinn hans er ótrúlega afslappaður og klár og hann blandar saman allri tegund af músík sem fyrirfinnst. Sum lögin eru einsog franskt hjartaknúsarapopp, önnur einsog barnalög fyrir fullorðna, enn önnur einsog diskóslagarar sem þú heyrir bara inní hausnum þínum.

Bertrand Burgalat - Spring Isn't Fair
Bertrand Burgalat - Bröder Kung
Bertrand Burgalat - Pleased Me

Buy "Portrait-Robot" from Amazon


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)