
Woah!
The Flying Lizards er eitt mesta snilldarband sem ég hef óvart rekist á... evör!
Á miðjum safndiski sem átti að innihalda italo og gamalt rafmagn rakst ég á þetta breska experimental rokkband sem koveraði allskonar lög í þeirra mjög svo ódramatíska og beint-í-smettið stíl. Frekar róleg og "áhugalaus" bresk kona hálf-talar yfir frekar róbótízkt undirspil, spilað af gaurum sem eru eiginlega jafn áhugalausir og þeir eru hæfileikaríkir. Sem er s.s. mjög, mjög mikið.
Fyrsta lagið sem ég heyrði með þessari hljómsveit og vissi hvað ég var að hlusta á, var koverið þeirra af James Brown laginu Sex Machine. Það lag kom út á seinni plötunni þeirra, Top Ten, sem innihélt tíu hittarakover.
The Flying Lizards - Sex Machine
- af plötunni Top Ten frá 1984
Fyrsta platan þeirra, The Flying Lizards, innihélt bæði frumsamin lög og kover. Eitt af lögunum á þeirri plötu er Money, lag sem ég hef oft heyrt áður án þess að vita hver flutti það (heyrði það síðast í myndinni Lord of War).
The Flying Lizards - Money
The Flying Lizards - What's New Pussycat
- bæði af The Flying Lizards frá 1979
Og, hér er YouTube vídjó af þeim að flytja lagið "Money" læv.
Þvílík snilld.
Comments(3)
Vá vá vá, sex machine er svoooooooo nýjasta uppáhaldslagið mitt í heimi!!!
Written 02.10.06 23:36
Þetta lag! Ég verð svo nostalgískur þegar ég heyri það..
Written 03.10.06 00:34
Já, bæði tvö, þetta band er æði!
Written 03.10.06 03:51