
Jorge Ben er einn af uppáhalds brasilíusöngvurunum mínum. Við erum ekki að tala um hinn týpíska mjaðmaknúsara sem lætur þreyttar húsmæður þyrsta í slurk af sérríi og sveittan dunk af útrunninni sólarvörn, heldur fer hann allan skalann: er svo ótrúlega hress, svo ljúfur, svo djúpur, svo góður, svo faunkí.
Hann gaf út fyrstu plötuna sína 1963 og er enn á lífi að gera eitthvað yndislegt í þágu heimsins og ófæddra barna. Fyrir utan hittarana sína ("Umbabarauma", "Uala Ualala", "Cosa Nostra", "Taj Mahal" og miiiiiklu fleiri) þá samdi hann "Mas Que Nada", sem sambatröllið Sérgio Mendes gerði frægara.
Á plötunni "Negro e Lindo" frá 1971 er frábært lag um Cassius Marcellus Clay, sem við vitum auðvitað að er hnefasamlokuhlunkurinn Muhammed Ali. Meira veit ég ekki því ég skil ekki portúgölsku, en ég efast ekki um að textinn lætur hörðustu snoðklipptu glæpamenn skæla og horfa beint í augun á næsta skrykkdansandi kínaskóklædda Nu-Reivara.
Jorge Ben - Cassius Marcellus Clay
Listen / Buy "Negro e Lindo" from Amazon
Annar frábær uppáhalds samlandi hans er Caetano Veloso, sem er hvað frægastur (þ.e. hjá hvítu fólki í seinni tíð) fyrir að hafa sungið lagið "Cucurrucucu Paloma" í Pedro Almodovar-myndinni Habla Con Ella ("Kommon, talaðu við'ana mar"). Hann er líka búinn að gefa út trilljón plötur, hver annarri betri.
Caetano Veloso er aðeins mýkri, aðeins meira folk-y, en ef einhver segir að hann (eða ég!) séum væmnir, þá á hinn sami örugga eilífa dvöl í fúlasta pytti heljar / á eilífum rúnti á hringtorginu á Selfossi, whichever comes first.
Báðir snillingarnir hafa sungið með flestum öðrum tónlistarsnillingum Brasilíu, og ég set örugglega meira með einhverjum þeirra hingað bráðum.
Þetta lag er ó svo yndislega frábært.
Caetano Veloso - O Leãozinho
Listen / Buy "Brazil Classics, Vol. 1: Beleza Tropical"
Þetta lag er því miður bara til á safnplötu, en hún mun lúkka mjög vel í hillunni þinni, mjög glóbal og heimsborgaraleg við hliðina á afrísku grímunni og fílafætinum.
Comments(2)
Ég hefði valið eitthvað af Ben é Samba Bon með Jorge Ben en þetta er fínt lag, var ekki búinn að heyra það áður.
Written 07.03.07 01:07
Já, það er góð plata!
(heitir reyndar "Ben É Samba Bom"), með m-i.
Ég mun pósta meira með honum, það er nóg til af mismunandi snilld.
Written 07.03.07 10:59