« Að vera eða vera ekki meððað. | Main | Venetian Summer »

Falsettometall

Master...Apprentice...Warrior...Disciple...

Hvaða viðskiptagúrú fer ekki í ham við að heyra þessi hvatningarorð, rífur skyrtuna frá bringunni svo tölurnar skjótast í flatskjáinn og ofan í egypska kaffið og rúkkolajógúrtið, svo vöxuð bringan endurkastar dagsljósslampabirtunni beint í andlitsspegilinn, og þaðan beint í mp3-sólgleraugun sem hvíla á vel blásnu hárinu.

A.m.k. veit ég nákvæmlega hvað ég meina.

Finnska Falsettometalbandið Nightwish er stórkostlega dramatískt. Þetta er, án alls gríns, einsog að vera kominn á Broadway í New York og sjá Óperumetalsýninguna sem þig dreymdi alltaf um að sjá. Svona einsog Cats, bara mínus kettirnir og plús Flying V gítarar, skósíðir leðurfrakkar, hvít andlitsmálning, dinglandi líkamsmálmur, leðurblökur og löngu-eftir-miðnætti. Starring: Michael Schenker, Udo, Bruce Dickinson, Catherine Church og Kristján Jóhannsson, með pródöksjóni eftir Tim Robbins.

Falsettometalbandið fór auðvitað í úrslit finnska Júróvisjón árið 2000, enda er erfitt að standast svona stóran skammt af hádramatískri tónlist, hádramatískum textum, svona mörgum synthum, og öllum þessum víbrandi "aaaah"um og "ooooh"um. Dáldið Enya, dáldið Scorpions, dáldið Bon Jovi, dáldið Andrew Lloyd-Webber. Og meiraðsegja framburðurinn er harður, einsog í bona fide óperu.

Ó, Nightwish.

Nightwish - Wishmaster
Nightwish - Deep Silent Complete

bæði af plötunni Wishmaster frá 2000

* * *

A) Heimagert YouTube vídjó við 'Wishmaster' með misheyrðum textum. Fyndið.

B) Gilby Clarke? Nei, Tuomas Holopainen.

Söngkonan rekin + Gilby Clarke lúkkalæk = Rockstar: Nightwish, anyone?

Comments(1)


bill:

Thens for the song.
I like this group


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)