Ég skrifaði um Minotaur Shock og þetta lag um daginn og sagði hvað mér fyndist það skemmtilega skemmtilegt. Mér finnst það enn frábærlega frábært. Ég vissi ekkert um Minotaur Shock þegar ég rakst á auglýsingu fyrir nýjustu plötuna en vissi að hún væri góð útaf nafninu. Ég vildi óska þess að ég hefði samið þetta lag.
Minotaur Shock - Vigo Bay
Listen / Buy
Ókei, ég hef aldrei hlustað mikið á Kid 606, kannski aðallega afþví að í gamla daga gaf hann út lagið 'Luke Vibert Can Kiss My Indiepunk Whiteboy Ass' sem ég hélt að væri eitthvað ljótt um Luke Vibert (Wagon Christ, Kerrier District, Plug, Amen Andrews o.fl.) sem er uppáhalds hjá mér. En svo var lagið ekkert diss heldur innihélt það sampl úr lagi frá hr. Vibert sem hr. Kid fékk aldrei leyfi fyrir og tók bara sjensinn. En bla bla, 'Spanish Song' er frábært lag. Ótrúlega skrýtið og skemmtilegt. Minnir mig pínu á Squarepusher, Bruce Haack, Luke Vibert og eitthvað new wave drasl. Fyndið, ha?
Kid606 - Spanish Song
Listen / Buy
Ég sá DeVotchKa! á tónleikum um daginn og sjóvið þeirra var ekki tónleikar heldur atriði. Eitt besta atriði sem ég hef séð, evör. Búttuð stelpa að spila á horn skreytt með rauðri jólaseríu, mjór og skeggjaður austur-evrópskur vísindamaður í teinóttum jakkafötum að hamast mjög prúðmannlega á fiðlu, bleiknefjaður verðbréfabraskari í jakkafötum að vippa út sveittustu trommugrúvum sem ég hef heyrt og svo úkraínskur bílasölumaður með þriggjadaga og toppinn blautan að hamast á gítarnum sínum og syngja einsog engill. Þetta var miklu miklu betra en það hljómar. DeVotchKa þýðir víst lítil dræsa á rússnesku, ókei? Þetta er eitt skemmtilegasta band sem ég hef séð og heyrt í. Þau spiluðu fullkomna blöndu af polka, rokki, salsa, bílskúrsbulli, rokkabillí, jazz, klassík, nýrómantík og kannski jafnvel smá góa transi. Yndislegt og frábærlega yndislegt.
DeVotchKa - How It Ends
Listen / Buy
Þökk sé Úlfi Eldjárn þá heyrði ég í Imitation Electric Piano fyrir einhverjum árum síðan. Það samanstendur af Simon Johns úr Stereolab og öðrum snillingum, og spilar að mestu instrumental tónlist, en þeir raula þó eitthvað smávegis í tveimur-þremur lögum á nýrri plötunni. Þvílík namedrop færsla, kannski bæti ég smá við listann: Helga Möller, Ray Kurzweil, Dr. Zhivago, Helmut Kohl. Þetta lag er skemmtilegt afþví að það er fyrsta lagið sem ég heyrði með þessu bandi, og það kemur á óvart. Leyfið laginu bara að spilast og ekki spóla áfram eða neitt svoleiðis.
Imitation Electric Piano - King's Evil
Listen / Buy
Damon Albarn er klár kall. Bæði vegna þess sem hann sagði og gerði í kringum og vegna G8 tónleikanna, og svo (auðvitað) vegna allrar tónlistarinnar. Ég fílaði Blur í gamla daga og fannst gott að vera í liði með þeim á móti öllum Oasis pungheilunum. Svo rímixaði Damon Albarn lag með Mínus, og svo fór hann til Mali og tók upp snilldarplötuna þar sem þetta lag er á. Platan heitir 'Mali Music' og á henni eru Malískir (?) söngvar og hljóðfæri og raul og hljóð og flottar melódíur. Þetta lag er uppáhalds.
Damon Albarn - Sunset Coming On
Listen / Buy